Tímarit Máls og menningar - 01.06.1999, Síða 56
Jón frá Pálmholti
„Það er um manninn að
tefla“
Endurskoðað erindi flutt á minningarstund um
Jón Óskar skáld í Listaskálanum í Hveragerði.
Það var einhverntíma snemma árs 1955 að ég gekk upp Bankastrætið, líklega
í hádeginu, dag einn á leið í skólann. Þetta var fyrsti veturinn minn í Reykja-
vík og ég var í Kennaraskólanum. í þetta sinn stansaði ég við gluggann á
Bókabúð Kron sem þá og lengi síðan stóð við Bankastrætið. í búðargluggan-
um var stillt upp tímaritshefti sem vakti athygli mína. Það var tímaritið Birt-
ingur 1. hefti þá nýkomið út. Þetta var Birtingur yngri einsog Einar Bragi
kallar það, en hann hafði áður gefið út nokkur hefti af Birtingi eldra. Ég man
vel er ég stóð þarna við gluggann og tók þá skyndiákvörðun að snarast inní
búðina og kaupa tímarit þetta, þráttfyrir lítil fjárráð. Ég stakk heftinu í skóla-
töskuna og hélt áfram göngunni.
Kennaraskólinn stóð við Laufásveginn og innkominn þar í skólastofuna
dró ég upp Birtingsheftið og fór að skoða. Nokkurt uppþot varð í skólastof-
unni þegar sást hvað ég var með, en kennsla var ekki hafin eftir hádegishlé.
Einhverjir spurðu hvernig í ósköpunum mér hefði dottið í hug að koma með
svona atómkjaftæði hingað inní Kennaraskólann, hótuðu að rífa heftið og
kæra þetta til skólastjórans. Ýmis fleiri orð féllu miður kurteisleg og lítið
gáfuleg að mér þótti. Ég fékk þó að halda Birtingsheftinu og munaði þar um
félaga mína sem lögðu mér lið og vildu jafnvel skoða sjálfir. Þetta voru Úlfur
Hjörvar, Björn Sigurðsson frá Möðruvöllum nú lögregluvarðstjóri,
Angantýr Hjörvar Hjálmarsson lengi kennari í Eyjafirði, nýlega látinn, og
Sæmundur Andersen kennari á Dalvík, en birst höfðu eftir hann nokkur Ijóð
á prenti og við töldum hann upprennandi skáld.
Svo birtist kennarinn í dyrunum. Það vildi svo skemmtilega til að dr.
Broddi Jóhannesson átti að kenna næstu kennslustund. Hann sá strax að
eitthvað var um að vera í stofunni og ég líklegur sökudólgur. Hann kom til
mín og bað þess af nokkrum myndugleik að ég afhenti sér það sem ég væri að
pukrast með. Ekki veit ég við hverju hann bjóst, en ekki gleymi ég sposkum
54
www.mm.is
TMM 1999:2