Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 108

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 108
EINAR MÁR JÓNSSON háttur Virgils gerólíkur vinnubrögðum Hómers, og er nauðsynlegt að benda á eitt: hinir ýmsu þættir Eneasarkviðu kallast á með ýmsu móti, og til að skilja hvern þátt verksins fýrir sig er oft nauðsynlegt að skoða hann í nánu samhengi við eitthvað annað. Ef þannig er litið á verkið að það skiptist í tvo jafna hluta, má t.d. finna nána hliðstæðu með annarri og áttundu bók þess. Önnur segir frá eyðileggingu borgar, Tróju, og hin gefur fyrirheit um stofh- un borgar, Rómar, og það tengist saman, því til að Róm gæti risið varð Trója að eyðast. V En það er hægt að lesa Eneasarkviðu með ýmsu móti, og kannske er einfald- ast til skilnings á verkinu að líta svo á, að það skiptist í þrjá nokkuð jafha hluta sem hver um sig er fjórar bækur. Fyrsti hlutinn segir fr á því hvernig flóttamaðurinn Eneas, sem kemst með naumindum lífs af með föður sínum og syni, þegar Trója fellur, og er gersam- lega áttavilltur í byrjun, verður þess smám saman vísari hvaða hlutverk guð- irnir hafa ætlað honum: að fara til „Vesturlandsins“, Italíu, setjast þar að og eignast nýtt óðal. En þessa þekkingu öðlast Eneas ekki fyrr en eftir miklar villur og hún er takmörkuð enn sem komið er. Því er hætt við að hann hefði ekki valdið hlutverkinu, ef hann hefði ekki haft stuðning föður síns, Ankises- ar, sem skilur fyrr en hann, en Ankises deyr í Sikiley, og þá lendir Eneas í mestu rauninni: vegna ástarinnar á Dídó drottningu í Karþagó gleymir hann hlutverki sínu um stund. En Júpíter áminnir hann, og hann siglir af stað til Ítalíu. Allan þennan fyrsta hluta mætti kenna við Karþagó, því verkið hefst á því að Eneas kemst þangað í hrakningum sínum og sögu sína ffam að því, fall Tróju og flóttann, segir hann síðan Dídó drottningu í veislu. Þessum frá- sögnum er hagað þannig, að glöggur lesandi getur skilið hvað er á seyði betur en Eneas gerir sjálfur. Áður en Eneas hefur sögu sína í veislunni í Karþagó, syngur kvæðamaðurinn Jópas langan brag, sem er rakinn í meginatriðum: „Hann syngur um slóðir mánans og strit sólar, um upptök mannkyns og dýra, regns og elds, syngur um Arktúrus, hina vætusömu Sjöstjörnu og Birn- ina báða, og um það, hví sólirnar hafa svo mjög hraðan við á vetrum að sökkva sér í úthafið og hvað veldur löngum nóttum“ (þýðing Hauks Hann- essonar, bls. 38). Eftir þetta tekur Eneas til máls og segir frá falli Tróju. Á þennan hátt er Virgill í rauninni að setja þessa sögulegu atburði sem tengjast Trójustríðinu inn í miklu stærra samhengi: þeir verða hluti af skipan al- heimsins og síðan þáttur í þeirri veraldarsögu sem hófst með „upptökum mannkyns og dýra“. Sá grunur vaknar því að hlutverk Eneasar sé einnig þátt- 106 malogmenning.is TMM 2000:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.