Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Side 121

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Side 121
MEÐ ELD t ÆÐUM inu við hliðina. Hendur hans skulfu. Einn góður hnerri færi með hann yfir móðuna miklu. Læknirinn snerti handlegginn á mér og sýndi mér minnisbókina: „Þetta er hr. Levant. Hann var einu sinni mikils metinn kaupsýslu- maður.“ Læknirinn brosti. „Hvar er hjúkrunarkonan?“ Læknirinn leit á mig með skrýtnum svip. Svo skrifaði hann: „Hún bað um að vera flutt á aðra deild.“ Hah! Ég spurði: „verð ég að læra að lesa blindraletur?“ Hann hristi höfuðið. Auðvitað ekki. Ég les ekki það mikið hvort eð er. Tveir lögreglumenn voru í stofunni. Þeir sýndu mér lögreglumerkin sín. Þeir skrifuðu spurningar um þrjótinn. Þeir spurðu mig hvort ég hefði verið að vinna að máli, þannig að þeir hljóta að hafa farið í gegn- um dótið mitt og fundið einkaspæjaraleyfið. Ég sagðist ekki hafa verið með mál, ég hefði aldrei séð gaurinn áður. Þeir skrifuðu að hann hefði heitið Johnny Marchetta, og að hann hefði verið einn af fylgisveinum Ray Scalese. Ég vissi ekkert af þessu fyrir. Ég gat ekkert sagt þeim og þeim var nokkuð sama; eyrnamissirinn réttlætti dráp mannsins full- komlega. Þeir spurðu mig hvort ég hefði hugmynd um hvers vegna hann hefði bitið það af. Ég sagðist ekkert vita, sem var satt á þeim tíma. Ég vissi ekki þá að þetta var eitthvað í Marchetta-blóðinu. Læknirinn gat ekki sagt mér hversu lengi heyrnarleysið myndi vara. Hægra eyrað var úr sögunni, en heyrnarleysið á vinstra eyranu var andlegt, og um hugarástand er aldrei hægt að spá. Þegar hann útskrif- aði mig ráðlagði hann mér að fara í táknmálstíma. Handapat. Ekki smuga. Það var nógu slæmt að ég heyrði ekki sjálfan mig tala. Allt það heyrnarlausa fólk sem ég hef heyrt í hljómar eins og Gomer Pyle á ró- andi. Læknirinn lét mig fá nafn á sálfræðingi sem hann sagði að gæti kannski hjálpað mér að fá heyrnina aftur. Einmitt. Líklega mágur hans. Ég var bara ánægður með að losna af biðstofu dauðans. Ég horfði mikið á sjónvarp. Hápunktur dagsins var þegar helstu fréttir birtust í ramma með stikkorðum á skjánum. Ég fór í langar göngu- ferðir í garðinum. Þegar ég sá að fólk starði á mig vissi ég að ég hefði TMM 2000:4 malogmenning.is 119
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144
Side 145
Side 146
Side 147
Side 148
Side 149
Side 150
Side 151
Side 152
Side 153
Side 154
Side 155
Side 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.