Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 148

Tímarit Máls og menningar - 01.12.2000, Page 148
RITDÓMAR birtast í náttútunni eldforn ffjósemis- frumtákn og alls ekkert er verið að dylja það því þarna eru örneínin Þórshamar og Freyjusæti. Goðmögnin magna upp tilveru staðarins sem kallaður er Álf- heimar og gera mannlíf þar að ýmsu leyti sérstakt þó fólk sé þar eins og fólk er flest að því undanteknu að margir eru með óvenjulega stórar tær vegna fjallaklifurs forfeðranna um aldir. Þetta goðmagnaða umhverfi er mjög virkt í ffásögninni og kemur eins og stef fyrir aftur og aftur í nýju og nýju samhengi og setur skemmtilegan blæ á textann. Borgina Álfheima er ekki hægt að finna á landakortinu þó hún sé næst- stærsta borg landsins. Af lýsingum sög- unnar má draga þá ályktun að borgin liggi um það bil þar sem Húnaflói er og sé að stærð mitt á milli Reykjavíkur og Ak- ureyrar. Saga plássins er dæmigerð fyrir íslenska þéttbýlisstaði, bær sem verður til og byggist hratt upp í byrjun aldarinnar á sjávarútvegi vegna góðra hafharskilyrða. Eitt fýrirtæki verður allsráðandi í at- vinnulífi staðarins, í einkaeigu athafna- jaxlsins sem hóf ferilinn með tvær hendur tómar. Með þessari aðferð, að skapa algerlega nýtt samfélag sem sögu- svið, fær höfundurinn ffelsi til þess að draga saman í hnotskurn marga dæmi- gerða þætti sem einkenna íslenskt sjávar- pláss í nútíð og fortíð án þess að lesandinn truflist að ráði af vangaveltum um hugsanlegar fyrirmyndir. Glingrað í dalakofa Það kemur engum á óvart að Árni Berg- mann skrifi lipran og lifandi texta. í fýrri skáldsögum sínum hefur hann sýnt að hann hefur gott vald á fjölbreytilegum stílblæ allt ffá reyfarastílnum á Með kveðju frá Dublin til sagnastílsins í Þor- valdi víðförla. Hér bregður hann víða á leik og beitir fyrir sig málfari úr þjóð- félagsumræðunni og yddar á það íronískan brodd, svo sem þegar sjávarút- vegsmál eða fyrirtækjarekstur eru til um- ræðu, eins og vikið verður að síðar. Skemmtilegast er þó hvernig hann beitir vísanatækni, tekur texta eða textabrot sem þekkt eru annar staðar ffá og fellir þau inn í sinn eigin texta. Ekki er nein sérstök regla á því hvaðan sótt er en það bregður fýrir orðum allt ffá ljóðum góð- skáldanna, dægurlagatextum, fornum kveðskap, auglýsingum og yfir í sjálfa Biblíuna. Á einum stað segir um elskendur að hún leggi „að honum höndina með léttu glingri...“ (bls 44) og um elskhugann í sama dæmi segir „... að hann hefði upp á eigin spýtur fundið upp sjálfan guðdóminn í faðm- lagi þeirra og vildi ekki annan guð hafa.“ (bls. 45) Um aðra fremur jarðbundna persónu „ ... hún mátti gleyma sér smá- stund, byggja sinn dalakofa í lyngholti þar sem enginn vissi af þeim,...“ (bls. 66). Og um Karlinn, drangann sem stend- ur ffamundan Þórshamrinum, segir „þennan karga öldubrjót sem enn stóð af sér lamstur veðra.“ (bls. 72). Vísanirnar koma oft skemmtilega á óvart og gæða textann vídd sem mjög eykur á ánægju lesandans við lesturinn. Kærleiksheimilið Aðalpersónur sögunnar eru Ólafur Björnsson útgerðarmaður, börn hans þrjú, Björn, Sigrún og Gunnar, fram- kvæmdastjórinn Ársæll og ráðskonan Rakel. Ólafur er þessi dæmigerði jaxl sem hefur sína útgerð á árabátum með tvær hendur tómar, harðsækinn og fengsæll, og byggir upp í áranna rás stórfýrirtæki í útgerð og fiskvinnslu sem er kjarninn í atvinnulífi ört vaxandi bæjarfélags. Nú ræður fýrirtækið yfir togurum, nóta- 146 malogmenning.is TMM 2000:4
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.