Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Blaðsíða 20
15
Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006
Mótun skólastarfs
5
atriðum sem getið var hér að framan. Listinn var forprófaður á tíu kennurum. Tvö
ítrekunarbréf voru send þátttakendum. Svör bárust frá 264 kennurum. Svarhlutfall var því
aðeins um 35%. Svörin endurspegluðu vel hlutfall kynja og dreifingu eftir landsvæðum.
Niðurstöður
Þversnið svarenda
Af þeim sem svöruðu spurningalistanum voru 83% konur og 17% karlar en samkvæmt
tölum frá Hagstofunni (2006) voru um 78% starfsmanna við kennslu í grunnskólum konur.
Um 11% voru 60 ára eða eldri, 22% voru 50–59 ára, 32% voru 40–49 ára, 27% milli 30–39
ára og 8% yngri en 30 ára. Samkvæmt tölum Hagstofu (2006) eru 7,1% kennara 60 ára og
eldri, um 24% á aldrinum 50–59 ára, 30% eru 40–49 ára, 27% eru 30–39 ára og 11% yngri
en 30 ára. Ríflega helmingur þátttakenda hafði yfir 11 ára kennslureynslu og 30% þeirra
höfðu 21 árs reynslu eða meira. Um þriðjungur hafði 11–20 ára reynslu sem kennarar, 14%
höfðu 6–10 ára reynslu og 27% höfðu fimm ára reynslu eða skemmri.
Sjálfstæði
Þess var getið hér að framan að undanfarinn áratug hefur verið lögð áhersla á aukið
sjálfstæði skóla. Þetta kemur fram bæði í grunnskólalögum og kjarasamningum kennara. Af
þeim sökum var áhugavert að kanna hvort kennarar telja að faglegt sjálfstæði grunnskóla
hafi aukist og einnig hvort þeir álíta að eigið faglegt sjálfstæði hafi aukist, en líklegt má
telja að þetta tvennt fari saman. Niðurstöður má sjá á 1. mynd.
5
13
39 36
74
13
61
17
6
0
10
20
30
40
50
60
70
Minnkað
mikið
Minnkað
nokkuð
Svipað Aukist
nokkuð
Aukist mikið
%
Sjálfstæði skólans Eigið sjálfstæði
1. mynd. Breytingar á sjálfstæði skóla og eigin sjálfstæði að mati kennara.
7
4
11
25
44
15
6
21 23
39
11
0
5
10
15
20
25
30
35
40
45
50
Mjög ósáttur Frekar ósáttur Hvorki sáttur
né ósáttur
Frekar sáttur Mjög sáttur
%
Hver tekur ákvarðanir Hvernig ákvarðanir eru teknar
2. mynd. Ánægja kennara með hver tekur ákvarðanir og hvernig
Kennarar voru einnig inntir eftir því hversu mikinn áhuga þeir hefðu á að taka ákvarðanir
um mikilvæg mál í skólastarfi og einnig hversu mikil áhrif þeir teldu sig hafa á sömu
málefni. Þeir voru beðnir að meta hvern þátt á kvarðanum 0–10 til að sýna áhuga sinn eða
áhrif. Niðurstöður má sjá á 3. mynd.
2. mynd. Ánægja kennara með hver tekur ákvarðanir og hvernig.