Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Blaðsíða 81
76
Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006
Er „menningarlæsi“ ungs fólks að breytast?
eftir í áherslum sínum eða hvort hefðbundnu
bóknámsáherslurnar muni óhjákvæmilega
verða ráðandi þar áfram. Munu drengirnir áfram
fá lægri einkunnir en stúlkur, en halda samt
þjóðfélagslegu forskoti sínu eins og Ehrenreich
(2006) spáir í nýlegum pistli? Hin mikla
menntasókn kvenna og sú staðreynd að stúlkur
nota internetið jafnmikið og drengir virðist góð
vísbending um gott framtíðargengi stúlkna. Þó
að þær fari minna í tölvuleiki þá virðist það
ekki tengjast auknu menntunarstigi eins og
notkun internetsins (Guðný Guðbjörnsdóttir,
2005c). Hvort breyting er að verða á þessu,
samanber það sjónarmið Carrington (2004)
að tölvuleikir séu að verða æ flóknari og veiti
því margs konar gagnlega samskiptaþjálfun,
þarf að kanna betur í náinni framtíð eins og
áherslur í nýjustu læsisrannsóknum kalla eftir
(Rowan og félagar, 2002). Sama á við um hvað
unga fólkið er að gera á internetinu, það er
orðið brýnt að rannsaka það, bæði með tilliti til
lestrar, kynjamunar og fleiri sjónarmiða.
Í lokaspurningu rannsóknarinnar var spurt
hvort athugunin benti til að verulegar breyt-
ingar væru að eiga sér stað á menningarlæsi
ungs fólks og á viðhorfum til íslenskrar
menningar? Niðurstöðurnar benda til að 15 ára
nemendur lesi nú minna í bókum en jafnaldrar
þeirra áður og þeir séu meira í nýju miðlunum
en eldri kynslóðirnar nú og jafnaldrar þeirra
áður. Þá kemur fram vísbending um að
þekking nemenda í 10. bekk á efni bókmennta
fari minnkandi, að undanteknum þjóðsögum
og goðafræði, ef marka má samanburðinn
frá 1993 (Guðný Guðbjörnsdóttir og Sergio
Morra, 1998). Þar sem spurningalistarnir voru
ekki alveg þeir sömu og um lítið úrtak er hér að
ræða ber að líta á þetta sem vísbendingu sem
kanna þarf nánar. Þegar þekking nemanna í 10.
bekk 2005 var borin saman við þekkingu fólks
á þrítugs- og fimmtugsaldri kom sambærilegt
mynstur fram, þ. e. marktækur munur var á
þekkingu þeirra og fullorðinna á fornsögum og
íslenskum bókmenntum, en ekki á þjóðsögum
og goðafræði. Líkleg skýring á því er að
þjóðsögur og goðafræði virðast mest lesnar
í skóla eða á barns- og unglingsárum og
goðafræðin er efnislega skýrari heild og
afmarkaðri en bókmenntir almennt (Guðný
Guðbjörnsdóttir og Sergio Morra, 1997,
1998).
Kynjamunurinn í lestri virðist minni en
áður, hann er lítill í internetnotkun en mikill
í tölvuleikjanotkun. Unga fólkið leggur mikið
upp úr vali, að lesa eða gera það sem það hefur
áhuga á og tíma til og sannarlega er úr fleiru
að velja nú en áður. Þó að unga kynslóðin noti
tölvurnar mikið þykir of sterkt að orði kveðið
að um nýja manngerð (Shi Jinrui) sé að ræða á
meðan óljóst er hvaða máli þessi tölvunotkun
skiptir. Mikilvægt er því að rannsaka betur þá
nýju færni eða gerð af læsi sem nýju miðlarnir
veita, og að hvaða marki hún getur komið í
staðinn fyrir þá færni sem lestur bóka hefur
veitt. Læsi fólks er að breytast og mikilvægt
er að rannsaka það nánar og að skólinn sé í
takt við þær breytingar (Au og Raphel 2000;
Guðný Guðbjörnsdóttir og Sergio Morra,
2004b; Katz og Rimon 2006; McCarthy
og fleiri 2003; Rowan og félagar, 2002).
Mikilvægt er að víkka út skilgreiningar á
menningarlæsi og taka af alvöru mið af færni
sem ungt fólk öðlast með nýju miðlunum, eins
og SMS, tölvuleikjum, bloggi, samskiptum
á netinu o.fl. Að einblína á bóknám eða bók-
lestur er ekki í takt við tímann, það þykir sýna
viðnám sem getur verið dýrkeypt. Sumir líta á
það sem viðleitni ráðandi kynslóðar til að halda
völdum og virðingarsessi þrátt fyrir kröfu um
annað (Bourdieu, 1998; Carrington, 2004). Í
skólakerfinu má sjá svipaðar áherslubreytingar,
flestir menntaskólar og háskólar leggja mikla
áherslu á texta og bóknám á meðan aðrir
framhalds– og háskólar eru opnari fyrir
tölvulæsi og myndmiðlum.
Ýmsir (Love og Hamston, 2003; Millard,
1997, 2002; Young, 2003) hafa bent á leiðir
til að nýta þessa nýju færni til að styrkja
námsgengi drengja, með því að virkja þá sem
gerendur í eigin læsi, í stað þess að hunsa
tölvuáhuga þeirra bæði heima og í skólanum.
Ný rannsókn á lestrarvenjum 8000 grunn-
og framhaldsskólanema í Englandi sýnir að
það sem nemendur telja að helst muni hvetja