Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Blaðsíða 23
18
Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006
Mótun skólastarfs
í grunnskólum. Því voru kennarar inntir
eftir því hversu mikil samvinna væri meðal
þeirra og einnig hversu mikil hún væri við
hagsmunaaðila utan skólans. Um 51% kennara
kvaðst eiga samstarf við skólastjóra en 49%
kváðu samvinnu við skólastjóra litla. Um 63%
kennara sögðu samvinnu við millistjórnendur
talsverða en 37% sögðu hana litla.
Fjórða mynd sýnir samvinnu kennara
almennt og einnig samvinnu kennara sem
kenna sama árgangi nemenda.
Á myndinni sést að 63% kennara telja að
samvinna meðal kennara sé umtalsverð en
37% telja hana fremur litla. Um 86% kennara
segja að samvinna kennara innan sama árgangs
nemenda sé mikil en um 14% telja hana litla.
Í stefnumarkandi gögnum um grunnskóla
er lögð áhersla á samvinnu við hagsmunaaðila
utan skólans. Um 66% kennara telja sig hafa
mikla samvinnu við fólk utan skólans en
11
31
4 3
66
27
5
2
42
37
20
2
63
0
10
20
30
40
50
60
70
80
Mjög lítil Fremur lítil Frekar mikil Mjög mikil
%
Reykjavík
Höfuðborgarsvæðið
Landsbyggð
5. mynd. Samvinna við skólaskrifstofur eftir svæðum
Myndin sýnir að almennt er samvinna við skólaskrifstofur takmörkuð. Um 94% kennara í
Reykjavík telja hana litla. Sama á við um 93% kennara af höfuðborgarsvæðinu utan
Reykjavíkur og 79% af öðrum stöðum. Aðeins um 6–7% kennara í Reykjavík og nágrenni
telja að samvinna við skólaskrifstofu sé mikil en um 22% kennara á öðrum stöðum eru
sömu skoðunar.
Kröfur og væntingar til kennara
Auk þeirra atriða sem þegar hafa verið rakin töldum við áhugavert að spyrja kennara með
meira en fimm ára starfsreynslu hvort þeir teldu að þrýstingur á kennara og væntingar til
þeirra hefðu aukist. Með þrýstingi er átt við beinar og óbeinar kröfur til kennara. Margir
kennarar hafa haft orð á því, einkum óformlega, að dreifstýringin hafi krafist meiri
ábyrgðar af kennurum. Um 50% kennara með yfir fimm ára starfsreynslu telja að
þrýstingur á þá hafi aukist umtalsvert undanfarin ár en um 47% þeirra telja að hann hafi
ekki breyst ð undanförnu. Um 50% segjast finna aukinn þrýsti g frá skólastjórum og um
69% töldu að þrýstingur frá foreldrum hefði aukist. Þá töldu um 64% að um aukinn
þrýsting frá skólaskrifstofum væri að ræða. Um 58% þessar kennara sögðu að álag í
kennslustundum hefði aukist. Um 19% þessara kennara álitu að eftirlit hefði aukist en um
70% töldu það óbreytt.
5. mynd. Samvinna við skólaskrifstofur eftir svæðum.
12
Á 6. mynd sést hvernig kennarar skynja breyttar kröfur frá skólaskrifstofum í
mismunandi landshlutum:
20
38 41
2 2
14
43
39
3 1
50
30
16
2
0
10
20
30
40
50
60
70
80
Mun
inni
Minni Svipaðar Meiri Mun
meiri
%
Reykjavík
Höfuðborgarsvæðið
Landsbyggð
6. mynd. Breytingar á kröfum frá skólaskrifstofum undanfarin fimm ár
Tengslin milli staðsetningar skóla og hversu miklar breytingar hafa orðið á röfum frá
skólaskrifstofum undanfarin fimm ár að mati kennara eru marktæk ( 2(8)=30,20,
p<0,001). Glöggt á sjá að kennarar á höfuðborgarsvæðinu telja í ríkara mæli en
kennarar nnars staðar á landinu að þrýsti gur á þá hafi aukist. Um 79% kennara í
Reykjavík telja að hann hafi aukist, um 82% kennara á höfuðborgarsvæðinu utan
Reykjavíkur eru sama sinnis en aðeins 46% kennara á öðrum stöðum landsins eru
þessarar skoðunar.
Umræða
Einn megintilgangurinn með þeim breytingum sem urðu með grunnskólalögunum 1995 og
tilheyrandi stefnumörkunarplöggum um menntamál var að auka sjálfstæði grunnskóla og
hvetja til skólaþróunar. Niðurstöður þessarar rannsóknar benda til þess að kennarar telji
almennt að faglegt sjálfstæði grunnskóla sé verulegt. Um 39% kennara telja að á þessu hafi
engin breyting orðið frá 1995 en um 43% þeirra telja að sjálfstæði skóla hafi vaxið síðan
þá. Um 18% álíta að faglegt sjálfstæði skóla hafi minnkað. Þetta rímar vel við niðurstöður
rannsóknar Barkar Hansen, Ólafs H. Jóhannssonar og Steinunnar Helgu Lárusdóttur (2002)
6. mynd. Breytingar á kröfum frá skólaskrifstofum undanfarin fimm ár.