Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 72
67
Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006
liði er ekki ljóst hvað þetta merkir í tíma.
Mun fleiri segjast nota internetið og tölvur
en lesa í tómstundum en um 75% drengja og
60% stúlkna eyddu tómstundum í tölvunotkun.
Einnig er meira um að 10. bekkingar verji
tómstundum með vinum og fjölskyldu, við
sjónvarpsnotkun, og drengir verja tómstundum
einnig í meira mæli í íþróttir/heilsurækt en
lestur, en ekki stúlkur. Samkvæmt Kí- prófi er
síðastnefndi kynjamunurinn marktækur, eins
og lestrarmunurinn (p<0,01), en annar kynja-
munur er ekki marktækur. Hér er mikilvægt að
benda á að tölvu- og internetnotkuninni fylgir
oft töluverður lestur þó miðillinn sé annar, en
ekki var spurt sérstaklega um þann lestur að
sinni.
En hversu oft fer unga fólkið á internetið og
í tölvuleiki ef það er skoðað nánar?
Á 1. töflu má sjá að bæði tölvuleikir- og
sérstaklega internetið eru mjög vinsæl meðal
þátttakenda. 86% drengja og 74% stúlkna fara
á internetið daglega. Mun meiri kynjamunur
er á iðkun tölvuleikja en internetnotkun, þ.e.
52% stúlknanna á móti 12% drengja fara aldrei
eða mjög sjaldan í tölvuleiki, og daglega fara
í tölvuleik 32% drengja en aðeins 4% stúlkna.
Samkvæmt Kí- prófi er kynjamunurinn á
tölvuleikjanotkun marktækur (p<0,001) en
ekki kynjamunurinn á internetnotkun. Vakin er
athygli á að hér er eingöngu spurt um hversu
oft þau fara á internetið en ekki hvað þau eru
að gera þar.
2. rannsóknarspurning: Bóklestrarvenjur
En hversu mikið lásu þátttakendur af bókum?
Bæði var spurt um lestur bóka s.l. 2 vikur
og lestur almennt. Minnt er á að könnunin
er gerð í maí, sama mánuði og samræmdu
prófin voru, sem líklega skiptir mestu máli
fyrir þessa spurningu og þá framangreindu
þar sem spurt var um iðju s.l. 2–4 vikur. Ef
niðurstöðurnar um lestur s.l. 2 vikur eru bornar
saman við niðurstöður úr sömu spurningu árið
1965 (Símon J. Ágústsson, 1976) annars vegar
og 1993 hins vegar kemur eftirfarandi í ljós,
Er „menningarlæsi“ ungs fólks að breytast?
1. tafla. Hversu oft ferðu á internetið/í tölvuleiki? Svör nemenda í 10. bekk 2005, skipt eftir kynjum.
(N=107).
Internetið (%) Tölvuleikir (%)***
Alls Drengi Stúlkur Alls Drengir Stúlkur
Aldrei/mjög sjaldan 0 0 0 32 12 52
Stundum 19 14 26 51 56 44
Daglega/oft á dag 81 86 74 17 32 4
Samtals 100% 100%
***p<0,001
2. tafla. Hversu margar bækur lastu s.l. tvær vikur? Lestur stúlkna og drengja í 10. bekk 2005, 1993* og
1965** (%).
Drengir Stúlkur
Fjöldi bóka 1965 1993 2005 1965 1993 2005
0 31,0 47,8 63,5 24,5 28,9 58,5
1 20,4 31,9 21,2 31,0 25,0 20,8
2 til 5 46,8 17,3 11,5 38,9 42,1 20,8
6 eða fleiri 1,8 2,9 3,8 5,6 3,9 0,0
Samtals 100% 100% 100% 100% 100% 100%
Meðalfjöldi bóka 1,73 1,20 0,79 1,93 1,91 0,81
* Sjá Guðný Guðbjörnsdóttir og Sergio Morra (1997). ** Sjá Símon Jóhannes Ágústsson (1976)