Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Side 65

Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Side 65
60 Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006 Er „menningarlæsi“ ungs fólks að breytast? Athugun á lestri og tómstundavenjum nemenda í 10. bekk Guðný Guðbjörnsdóttir Háskóla Íslands Í rannsókn þessari eru kannaðar lestrar- og tómstundavenjur ungs fólks árið 2005. Markmiðið er að skoða menningarlæsi nemenda í 10. bekk og bera niðurstöðurnar saman við fyrri rannsóknir á sama aldurshópi og við sambærilega athugun á eldra fólki frá 2005. Spurningalisti var lagður fyrir í tveimur skólum í Reykjavík, 107 nemendur alls. Niðurstöðurnar benda til að nemendur lesi minna í bókum 2005 en jafnaldrar þeirra 1993 og 1965 og að notkun þeirra á internetinu og tölvuleikjum í frítíma sínum, sé mun meiri en fólks á þrítugs- og fimmtugsaldri og jafnaldra þeirra áður. Þeim fjölgar á báðum kynjum sem aldrei eða mjög sjaldan lesa tiltekna bókaflokka. Þá kom fram vísbending um að þekking ungs fólks á bókmenntum fari minnkandi. Kynjamunurinn í lestri er nokkur, stúlkum í vil, en þó minni en áður; lítill og ekki marktækur í internetnotkun en tölvuleikjaiðkun drengja er marktækt meiri en stúlkna. Vinsælustu bækurnar hafa verið kvikmyndaðar og eftirminnilegar bókapersónur eru yfirleitt karlkyns. Unga fólkið leggur mikið upp úr vali, að fólk lesi eða geri það sem það hefur áhuga á og það telur frekar en fullorðnir að áhugi á íslenskri menningu fari þverrandi. Þó að unga kynslóðin lesi minna af bókum en áður og noti tölvurnar mikið þykir vafasamt nú að fullyrða um afleiðingarnar til framtíðar. Mikilvægt er því að rannsaka betur þá gerð af læsi, sem nýju miðlarnir skapa, og að skólinn sé í takt við þær breytingar. Hugtakið menningarlæsi þarf að endurskilgreina eða víkka þannig að það nái til læsis á alla viðkomandi miðla og til þekkingar sem stuðlar að virkni í samfélaginu, bæði heima fyrir og alþjóðlega. Vonast er til að rannsóknin geti nýst menntamálayfirvöldum og kennurum í viðleitni þeirra til að efla læsi og menntun ungs fólks á Íslandi á tímum tæknibreytinga og hnattvæðingar. Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006, 60–81 Hagnýtt gildi: Greinin hefur hagnýtt gildi fyrir menntamálayfirvöld og kennara, bæði varðandi skipan námskrár og kennsluaðferðir sem eiga að efla læsi og menntun ungs fólks, ekki síst drengja. Þá er bent á leiðir til að miðla bókmenningararfi þjóðarinnar í skólum á tímum tæknibreytinga og hnattvæðingar. Í greininni er varpað ljósi á lestur og tómstundavenjur ungs fólks í 10. bekk í samanburði við jafnaldra þeirra árin 1993 og 1965 og fullorðið fólk á þrítugs­ og fimmtugsaldri nú. Minnkandi bóklestur og aukin tölvu­ og internetnotkun bendir til þess að lestur og læsi tengist í vaxandi mæli tölvum og öðrum samskiptamiðlum, en það gæti skapað nýja færni sem þarf að fylgjast með og meta í skólum. – Shi Jinrui er heiti sem foreldrar í Japan nota um okkar kynslóð ungs fólks. Það merkir ný manngerð (e. New humankind). Þau halda því fram að við séum svo ólík öðrum kynslóðum, það sé eins og að bera saman krít og ost. Við hugsum, klæðum okkur og eyðum frítíma okkur öðruvísi … Við erum í þróun, bylting, afl sem þarf að viðurkenna. Við erum Shi Jinrui og komin til að vera. Daniel Wilks (2002, bls. 6)
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108

x

Tímarit um menntarannsóknir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit um menntarannsóknir
https://timarit.is/publication/1140

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.