Tímarit um menntarannsóknir - 01.01.2006, Page 78
73
Tímarit um menntarannsóknir, 3. árgangur 2006
Samantekt og umræða
Megintilgangur þessarar greinar var að kanna
lestrar- og tómstundavenjur nemenda í 10.
bekk 2005 og bera niðurstöður saman við eldri
upplýsingar um sama aldurshóp og samtíma-
gögn um fullorðið fólk til að greina breytingar
og sérstöðu á læsi og tómstundavenjum ungs
fólks nú.
Spurningalistaathugun þessi hefur ýmsa
annmarka. Þó að aðferðin geri mögulegt að
ná til margra nemenda og álykta um tíðni, skal
minnt á að úrtakið í þessari athugun var
aðeins um 100 nemendur eða sama stærð og
úrtak fólksins á þrítugs- og fimmtugsaldri.
Síðarnefnda úrtakið var valið af handahófi
úr þjóðskrá en stuðst var við þægindaúrtak
við söfnun gagna um 10. bekkinga í tveimur
skólum í Reykjavík. Því er einungis um
nemendur í Reykjavík að ræða, en markvisst
var reynt að velja skóla sem tryggðu til
samans að félagslega yrði um blandaðan hóp
að ræða. Spurningalistaaðferðin hefur hins
vegar þann galla að ekki er mögulegt að fara
djúpt í ástæður og hugsanagang hvers og eins,
samanber fyrri athuganir höfundar á efninu
þar sem viðtölum og eigindlegum aðferðum
var beitt (Guðný Guðbjörnsdóttir og Sergio
Morra, 2004a og b). Þá er enn minnt á þann
annmarka að fyrirlagnartíminn var sérstakur
fyrir nemendurna í 10. bekk vegna nálægðar
við samræmd próf. Við þetta var ekki ráðið,
þar sem heimild fékkst ekki í skólum til að
leggja listana fyrir fyrr um veturinn. Ætla má
að áhrif fyrirlagnartímans séu aðallega þau að
spurningarnar um lestrar- og tómstundaiðkun
s.l. 2 til 4 vikur verði að skoðast í ljósi hans.
*** P<0,001.
3. mynd. Hvernig telur þú að íslensk menning og áhugi á henni hafi breyst? Svör nema í 10. bekk og
fullorðinna (á þrítugs- og fimmtugsaldri) 2005. Hundraðstölur (%).
34
7
6
48
9
17
46
6
7
9
29
37
54
0 10 20 30 40 50 60
Meiri áhugi á
íslenskri menningu
Engin breyting að ráði
Annað***
Tungumálið að
breytast***
Minni áhugi á íslenskri
menningu***
Samskipti og venjur
eru að breytast
%
Fullorðnir Unglingar
.
. . telur þú að íslensk men ing og áhugi á henni hafi breyst? Svör nema í 10. bekk
og fullorðinna (á þrítugs- og fi t i) 005. Hundraðstölur (%).
Er „menningarlæsi“ ungs fólks að breytast?