Gripla - 01.01.1995, Page 15
ÚR TYRKJAVELDI OG BRÉFABÓKUM
13
Til Mijnniz
War suo margt foolk fangad og hertekid a Jslande á þuj Aare: 1627 af
tijrkium huorier komu vr Barbarieno. I Vestmanneyar: Djupa vog og
Grijnda Vijk
Ad tólu: iiij hundrad hálft20: kallfölk: kuennmenn: og vngmenne: Hier
ad auk: 15 sem i' Grijndavijk tekner vóru: Ejrninn Altafijrde Berufijrdi
og Reijdarfyrdi: fyrer austann hafa nu suo göder og skilvijser menn fra
sagt af þeim sem aptur komu vr Barbarienu Ad J [Acier] af fyrskrif-
udu folki hafe turnast: 26: þeir sem fullordner voru kallmenn og konur:
Þar ad aukj Bórn og vngmenne: 64: sem voru fyrer Jnnann 12 ár: til. ij
ára: og ad aukj þau iij sem á framm reysunne fæddust: og ij sem þar J
sialfu landino til komu: enn J Jslande gjetinn
Enn J Vestmanneýum lijflátner: 21 med j Barne
Hafdi af austann fölkino turnast: 18 Vngmenne fyrer Jnnann: 12 ár enn
fullordner vj: med eirne konu: Suo og ondudust ij konur á reijsunne:
huórium vt var kastad: vard ónnur eckj vidskila vid sitt foostur: enn
ónnur Bráddaud:21
Frásagnir urðu fljótt til um Tyrkjaránið, en mestöllu skrifuðu efni
um atburðina safnaði Jón Þorkelsson saman og gaf út í ritinu Tyrkja-
ránið á íslandi 1627 (Sögurit IV), Rvk. 1906-1909. Kláus Eyjólfsson
lögréttumaður á Hólmum í Rangárþingi skrifaði samsumars um ránið í
Vestmannaeyjum.22 Skólapiltar að austan sem voru í Skálholti 1628
tóku þá saman frásögn um atburðina fyrir austan.23 Síra Ólafur Egils-
son á Ofanleiti í Vestmannaeyjum, sem hertekinn var skrifaði Reisu-
12. Um skrifarann, sjá Stefán Karlsson. Halldór Guðmundsson, norðlenzkur maður.
Opuscula Vol. IV (Bibliotheca Arnamagnæana Vol. XXX). Kh. 1970, 83-107.
20
hundrað hálft: í handriti er hundraðstákn skrifað ofan línu og lóðrétt strik í.
21 (
I Tyrkjaránssögu Björns á Skarðsá, sem síðar verður vikið að, er áþekkt yfirlit,
ugglaust byggt á sömu heimild, en í því er ekki getið þeirra tveggja barna sem fædd voru
í Barbaríinu en getin á Islandi, þar er talið að 99 hafi turnast og ekki tilfærð tala þeirra
sem drepnir voru í Vestmannaeyjum, en heildartala þeirra sem drepnir voru á íslandi
sögð 40, Tyrkjaránið á íslandi 1627, 299.
“2 Tyrkjaránið á íslandi 1627, 18-90.
Sama rit, 6-17.
23