Gerðir kirkjuþings - 2004, Blaðsíða 47
5. mál.
Fræðslustefna Þjóðkirkjunnar
Flutt af Kirkjuráði
Frsm. Karl Sigurbjömsson
I. Kafli
Fræðsla frá vöggu til grafar.
Fræðsla kirlgunnar hefur það að markmiði að styrkja hvert og eitt okkar til þess að
öðlast dýpri skilning á kristinni trú og þroskast sem manneskjur1 2.
I hverri sókn landsins skal bjóða upp á frœðslu frá vöggu til grafar.
Frœðslustarfinu er skipt ífimm meginflokka:
1. Foreldrastarf
2. Barnastarf
3. Fermingarstarf
4. Starf með unglingum og ungu fólki
5. Fræðslafullorðinna
1. Foreldrastarf
Markmið:
Þjóðkirkjan styðji foreldra í uppeldishlutverki sínu hvarvetna þar sem kirkjan og
foreldrar mœtast.
Verkefni:
o Skím undirbúin með viðtölum við foreldra og því fylgt eftir í kirkjulegu starfi
o Fræðsla fyrir unga foreldra um uppeldi og trúariðkun, ásamt bömum, s.s. með
foreldramorgnum
o í tengslum við bama- og æskulýðsstarf skal bjóða foreldrum fræðslu um uppeldi
ogtrú og mikilvæg lífsgildi, t.d. með átaksverkefninu “Friðum bemskuna!”
o Virkja foreldra í bama- og æskulýðsstarfi
o Styðja við bænalíf og helgihald á heimilum, m.a. með útgáfu efnis
2. Barnastarf - börn, 12 ára ogyngri
Markmið:
I bamastarfi Þjóðkirkjunnar læri barnið að þekkja Guð og upplifa samfélag við hann
í samræmi við þroska þess og aldur3'
Verkefni:
o 7 ára böm og yngri: Sunnudagaskóli, þ.e. barnastarf sem hluti almennrar
guðsþjónustu safnaðarins eða sér fræðsla, svo og fræðsla í tengslum við
foreldramorgna. Áhersla skal lögð á upplifun og að kenna bænir og vers.
1 Sjá grein 7.1 í Stefnu og starfsáherslum Þjóðkirkjunnar 2004-2010, bls 10.
2 Finnskt verkefni staðfært.
3 Gunnar E. Finnbogason: Að vísa veginn - drög að námsskrá fyrir kirkjulegt barnastarf 4-10 ára barna,
fræðsludeild kirkjunnar og yngribamanefnd kirkjunnar, 1995, bls.10.
45