Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 17
BJÖRN ÞORKELSSON, SVEINSSTÖÐUM
in. Vann hún mest að hannyrðum, vel gerðum, og gaf
börnum sínum. Hafa ýmsar þeirra geymzt í eigu ætt-
menna.
Rannveig andaðist á Svaðastöðum 1867. Það kemur fram hjá
þeim, sem hafa skrifað um Rannveigu Jóhannesdóttur, að heilsa
hennar var misgóð. Hún var nokkuð góð, þegar hún var í
Gautsdal með móður sinni og eins á Ríp.
Eins og áður er getið bjó Jóhannes Jónsson á Sveinsstöðum
1840 til 1846. Árið 1845 er við manntal á Sveinsstöðum skrifað
í kirkjubók:
Jóhannes Jónsson, bóndi, 74 ára ekkill.1
Sigurlaug Isleifsdóttir, bústýra, 17 ára.
Guðmundur Isleifsson, vinnumaður, 19 ára, bróðir
Sigurlaugar.
Sigríður Bjarnadóttir, vinnukona, 15 ára.
Þetta ár hafði Konkordía, ráðskona Jóhannesar, farið vestur
að Gautsdal. Sigurlaug Isleifsdóttir giftist síðar Indriða Árna-
syni bónda á Irafelli. Dótturdóttir hennar var Sigurlaug Magn-
úsdóttir í Gilhaga. Sigurlaug í Gilhaga hafði eftir ömmu sinni,
að þegar hún var á Sveinsstöðum 1845, hafi Rannveig komið þar
og grét þá öðru hvoru út af bágum kjörum sínum. Rannveig var
þá að fara frá Gautsdal.
Prestsþjónustubók í Bergsstaðaprestakalli er ekki til fyrir
1816, en til er manntal 1814, og þá virðist Gautsdalur vera í
eyði, en Jóhannes Jónsson gæti hafa byrjað búskap þar 1815.1
manntali 1816 eru 11 manns á heimili Jóhannesar í Gautsdal:
Þau hjónin og Rannveig dóttir þeirra, 19 ára. Þar eru fjórar
vinnukonur, tökupiltur 13 ára, tveir vinnumenn og húskona,
1 Helga kona Jóhannesar dó á Sveinsstöðum 1849. Því er rangt að Jóhannes
hafi verið ekkill 1845.
15