Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 132
SKAGFIRÐINGABÓK
eins og í öndverðu, og því auðvelt að skoða þá. Skv. upplýsing-
um frá forvörðum Þjóðminjasafns var yfirborð legsteinanna
hreinsað og síðan lakkað með glæru epoxylakki. Og til að hlífa
þeim við átroðningi eru þeir að jafnaði girtir af með köðlum, en
þegar mannmargt er í kór, eins og t.d. við fermingar, eru lagðar
sérsniðnar mottur yfir þá.
Legsteinarnir sjö í kórnum lágu upphaflega berir, sléttfelldir
í gólf steinkirkjunnar. Á árunum 1886—89 var kirkjunni allri
umturnað að innan, gólfið steypt og tréhlerar settir yfir leg-
steinana. Ólíklegt er að þá hafi verið hreyft við þeim, því að
upprunalega hellulögnin virtist óhreyfð í kringum þá, þegar
steypan var brotin upp vorið 1988, sbr. óbirtan fyrirlestur Þor-
steins Gunnarssonar. Meðfylgjandi mynd ætti því að sýna hvar
kirkjusmiðurinn Sabinsky skildi við þá árið 1763.
Nú má spyrja hvort Sabinsky hafi komið legsteinunum fyrir
yfir réttum gröfum. Eins og fram kemur hér á eftir getur það
ekki staðizt, raunar hefur það verið vitað um nokkurt skeið. En
hvar voru þá legstaðir biskupanna? Flestir þeir biskupar, sem
hér um ræðir, voru grafnir í kirkju þeirri, sem kennd er við
Elalldóru Guðbrandsdóttur, og reist var 1626-7. Á meðfylgj-
andi teikningu eru grafstæðin færð inn á grunnmynd þeirrar
kirkju, og fer rökstuðningur hér á eftir.
Jón skalli Eiríksson: Steinninn með mynd Jóns biskups var „í
Hólakirkju (karlmanna megin)“, þ.e. að sunnanverðu, að sögn
Árna Magnússonar.78 Líklega er þar frekar átt við framkirkjuna
en kórinn.
Ólafur biskup Rögnvaldsson „meinast að liggja mitt á kirkju-
gólfinu á Hólum“, hefur Árni Magnússon eftir Halldóri gamla
Þorbergssyni.79 Á grunnmynd Sabinskys af Halldórukirkju er
sýndur stór legsteinn á miðju kirkjugólfi, nánar tiltekið í kórn-
um framan við altarið. Trúlega er það legsteinn Ólafs Rögn-
valdssonar. Sé miðað við núverandi kirkju, er gröf hans að finna
norðan við legstein Jóns Teitssonar, á móts við róðuna miklu.
Halldóra Árnadóttir: I minningarriti Arngríms lærða um
130