Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 97
UM LEGSTEINA í HÓLADÓMKIRKJU
stöfum, stafastærð breytileg, 20-40 mm. Neðst er fangamark
Þórðar Jónssonar, Vigfússonar, síðar prests á Staðastað, sem
hefur látið gera steininn.
Þar sem í textanum stendur, að Jón Vigfússon hafi búið sér
lifandi þennan bústað, þar sem hann skyldi hvílast látinn, vísar
til eins konar grafhýsis, sem hann lét gera að baki kórs Hall-
dórukirkju, á milli múrsins og kirkjunnar. Þegar grafið var fyrir
norðurvegg steinkirkjunnar, var gröfinni raskað og bein Jóns
Vigfússonar tekin upp.
Jón biskup hefði líklega átt að leggja fyrir sig verzlun, því að
hann virðist hafa haft gott viðskiptavit. Að sögn Jóns Espólíns
var hann „sköruglegur maður sýnum, hinn mesti fyrirhyggju-
maður og búsæll." Hann giftist árið 1668 Guðríði, dóttur séra
Þórðar Jónssonar í Hítardal og Helgu, dóttur Árna lögmanns
Oddssonar. Guðríður „var lítil vexti og kvenleg, . . . góð kona
og merkileg að öllum hlutum.“36 Árið 1692 fluttist hún suður á
eignarjörð sína Leirá, og andaðist þar í byrjun febrúar 1707, 62
ára gömul. Hún var jarðsett á Leirá, og hvílir því ekki hjá bónda
sínum á Hólum, eins og gefið er í skyn á legsteininum. Þau Jón
og Guðríður eignuðust níu börn, sem upp komust. Er mikill og
merkur ættbogi frá þeim kominn. Má segja að Jón biskup hafi
hrósað stærstum sigri í afkomendum sínum.37
11. Steinn Einars biskups Þorsteinssonar og kvenna hans
Einar biskup Þorsteinsson var Borgfirðingur, fæddur í Hvammi
í Norðurárdal 1633. Eftir nám í Hólaskóla og guðfræðipróf frá
Hafnarháskóla varð hann kennari og rektor á Hólum. Síðan
þjónaði hann sem prestur að Múla í Aðaldal í 31 ár, þar til hann
tók við biskupsembætti á Hólum vorið 1692. Honum er svo
lýst:
Einar biskup var vel að sér í andlegu og veraldlegu, gest-
risinn, glaðsinnaður, stjórnsamur bæði á stólnum og í
95