Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 47
BJÖRN ÞORKELSSON, SVEINSSTÖÐUM
dóttir gengu í hjónaband. Það var um hausttíma. Þau fóru
frameftir kvöldið áður og gistu. Það var um hundrað
manns í veizlunni. Skálinn var tjaldaður innan og drukkið
þar í stofunni. Vín var veitt, púns í kollum, og sérstakur
kjallaramaður. Menn voru glaðir, en ekki drukknir.
Dansað var um kvöldið og spilað á einfalda harmoniku, er
Jóhannes átti, og stóð veizlan til klukkan fimm um nótt-
ina. Kona var þar rúmföst. Það var móðir séra Friðriks
Friðrikssonar. Jóhannes var fríður sýnum og glaðlyndur,
en mun ekki hafa verið sérlega vinnugefinn, enda eftir-
lætisbarn. Guðrún var ekki fríð og miður vinnugefin.
Fíún fór seint á fætur brúðkaupsmorguninn. Jóhannes
kom inn áður en hún var komin á fætur, og spurði hún
hann þá, hvort hann væri búinn að blanka1 skóna sína.
Björn Þorkelsson keypti Skíðastaði handa þeim Jóhannesi og
Guðrúnu, en hún vildi ekki flytja þangað, setti það fyrir sig, að
bærinn væri slæmur. A krossmessudag vorið 1887 fór Jóhannes
þó fyrstu ferðina með flutning að Skíðastöðum. Um nóttina
skall á stórhríð, sem stóð í fjóra sólarhringa, og olli miklum
fjárskaða. Þau Jóhannes og Guðrún ákváðu þá að flytjast til
Ameríku. Þar lézt Jóhannes skömmu síðar og varð sólstingur
honum að bana. Þau Guðrún áttu ekki börn. Sigurlaug Brynj-
ólfsdóttir átti að vera vinnukona hjá Jóhannesi að hálfu, á
Skíðastöðum. Hann vildi að hún færi með þeim til Ameríku, en
til þess langaði hana ekki. Þetta sama vor fór til Ameríku Björn
Jósafatsson á Gili í Svartárdal. Hann kvæntist síðar Guðrúnu
Halldórsdóttur.
Enginn hefur talið tár Björns og Guðlaugar, þegar þau misstu
börnin, en leiðin eru í garðinum.
Sumarið 1975 kom Ingibjörg Jónsdóttir á Marbæli að Goð-
dölum, var við jarðarför Sigurðar Egilssonar. Móðir Ingibjarg-
1 Að blanka = að gljábursta. Sbr. blank(u)skór.
45