Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 178
SKAGFIRÐINGABOK
kallaði sig Hafstað. Jón yngri man ég öllu betur, enda gisti hann
í Háakoti. Eg hygg að það hafi verið vorið 1911, sem hann kom
til að sækja landskuldir af jörðum föður síns. Man ég þar til að
nefna auk Háakots, landskuld frá Sveini í Lundi, en Jón átti %
úr Lundi, að ég held. Auk þess kom unglingspiltur frá Olafs-
firði með landskuldargemlinga, sem hann rak inn yfir Lágheiði.
Ekki veit ég um nafn hans né hvaðan landskuldin var. En að
sögn Sigurðar Jóhannessonar bónda á Vémundarstöðum, átti
Jón á Hafsteinsstöðum jarðirnar Hól, Grund og Ytri-Gunn-
ólfsá í Ólafsfirði og sennilega Vatnsenda.
Ekki hef ég kynnt mér hvort Sigurður mundi þetta rétt. Eg
var nálægur þegar faðir minn og Jón voru að þukla og meta
gemsana. Eftir að hafa skoðað væna gimbur frá Sveini í Lundi,
sagði faðir minn: „Hún er þá með lambi þessi“, en fremur var
fátítt á þeim tíma, að gimbrar á fyrsta vetri ættu lömb. Gerðist
slíkt, var oftast til þess stofnað í óleyfi. Eg hygg, að jörð hafi
verið að mestu snjólaus í byggð og færi gott, frost um nætur, að
minnsta kosti til fjalla. Síðla nætur lagði Jón af stað frá Háakoti.
Pabbi fylgdi honum fram Tungudalinn, en þá leið fór hann, og
vestur yfir Tungufjall, niður í Unadal. Er þá komið niður að
Spáná (Spræná), fremsta bæ í Unadal austan ár. Þetta var löng
rekstrarleið allt til Hafsteinsstaða. Satt að segja hef ég enga hug-
mynd um, hvernig faðir minn kom landskuld og leigum
(smjöri) til Jóns nema í þetta eina skipti, sem sonur hans sótti
landskuldina. Jón yngri vakti eftirtekt mína vegna þess hversu
þrekvaxinn hann var og vöðvamikill, enda talinn rammur að
afli. Hann varð seinna gildur bóndi á Hafsteinsstöðum.
Eftir að ég flutti í Hjaltadalinn hafði ég nokkur kynni af þeim
bræðrum, Jóni og Arna. Voru þau öll með ágætum. Eftir að for-
eldrar mínir fluttu í Lund, gisti Jón á Hafsteinsstöðum eina nótt
hjá okkur, sá ég hann þá í annað sinn og ekki oftar svo ég muni.
Hann var þá á ferð um Fljót til að virða jarðir til fasteignamats.
Með honum við þetta starf var Geirfinnur Trausti Friðfinnsson
bóndi og hreppstjóri á Hofi í Hjaltadal. Geirfinnur gisti á
176