Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 96
SKAGFIRÐINGABOK
Það þrennt hafði aldrei skeð hér áður: 1. Að einn sýslu-
maður varð biskup. 2. Að biskup var vígður hér í landi. 3.
Að fjórir íslenzkir biskupar hafi undir eins verið hér í
landi, hvað allt við bar á þessu ári.34
Jón sat síðan á Leirá og lifði af eignum sínum (og tóbaks-
prangi að því er sagt var), þar til Gísli Þorláksson andaðist
sumarið 1684. Jón reið þá skjótt norður til að taka við biskups-
stólnum. En þá reis mikil mótmælaalda meðal klerka nyrðra,
sem vildu ekki fá hann sem biskup. Var það upphafið á stanz-
lausum óróa og málaferlum, sem lauk ekki fyrr en með dauða
biskups 30. júní 1690. Var hann þá 46 ára gamall. Heiftin var þá
svo mikil, að þegar andlátsfregnin barst á alþingi, var málinu
fram haldið og erfingjarnir dæmdir til að greiða 1700 ríkisdali í
sektir. Þórður, elzti sonur Jóns biskups, var þá við nám í
Kaupmannahöfn. Með styrk og ráðum góðra vina fékk hann
vísað málinu til hæstaréttar, þar sem alþingisdómnum var
hnekkt. „Hefur og ei öðrum tvítugum ungling betur heppnazt,
þó með vinastyrk, að forsvara nafn, virðingu og góss síns föður,
heldur en Þórður gerði í það sinn. “35 Þórður virðist og hafa látið
gera legstein foreldra sinna, eins og fram kemur hér á eftir.
Steinninn er úr rauðleitu líparíti, stærð 173 X 118 cm.
Umhverfis leturflötinn er skrautbekkur með teinungum og
blöðum. I hornunum þar innan við standa guðspjallamennirnir
ásamt merkjum sínum í súlnahliðum eða súlnagöngum og nöfn
þeirra á boganum fyrir ofan. Er fyrirkomulagið áþekkt því sem
er á steini Gísla Þorlákssonar. Leturflöturinn skiptist í fimm
afmarkaða reiti. Upphaf grafskriftarinnar er efst fyrir miðju.
Þar fyrir neðan skiptist hún í tvennt: grafskrift Jóns biskups er
vinstra megin og Guðríðar konu hans hægra megin, en lóðrétt-
ur blómbekkur er á milli. Neðst fyrir miðju eru tveir litlir reitir
með fæðingar- og dánarárum þeirra hjóna. Eyða er fyrir dánar-
ár og aldur Guðríðar, því að hún var enn á lífi, þegar steinninn
var gerður. Aletrunin er með upphleyptum latneskum upphafs-
94