Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 98
SKAGFIRÐINGABÓK
stiftinu, þó vel látinn af fólki. Hafði góða umsjón yfir
staðarins eignum og jörðum, svo héldust við góða hefð og
makt. Blessaðist hann þar vel á fáum árum. Hélzt bæði
Hólabiskupsstóll og skóli um hans tíð við góða og gamla
hefð og stjórn. Hvað síðan hnignað hefir hvorumtveggj-
um, er kunnugast þeim, er til vita.38
Einar biskup andaðist 9. október 1696, líklega úr hjartabilun,
og var jarðsettur sjö dögum síðar við kórdyr í Hóladómkirkju.
Steinn hans er úr líku efni og með líku verki og steinn Jóns Vig-
fússonar, stærð 152x89 cm. I hornum steinsins eru myndir og
merki guðspjallamannanna og nöfn þeirra á þrepunum sem þeir
standa á. Skrautbekkur með teinungum er á milli þeirra og efst
fyrir miðju engilhöfuð með krosslögðum vængjum. Aletrunin
er með upphleyptum latneskum upphafsstöfum, stafastærð 20-
35 mm.
A steininum stendur, að Einar hafi þjónað heilögu embætti
33 ár. Við þetta er það að athuga, að hann var prestur 31 ár og
biskup 4VÓ ár.
Einar biskup var tvígiftur. Fyrri kona hans var Ingibjörg
Gísladóttir, prests á Bergsstöðum í Svartárdal, Brynjólfssonar.
Hún andaðist á Hólum 8. júní 1695, á 53. aldursári, og var
„grafin í kórnum, skammt innar frá biskupssætinu.“39 Þau áttu
ellefu börn, sem upp komust, en fimm þeirra dóu í stórubólu
1707. Seinni kona Einars var Ragnheiður Jónsdóttir, ekkja
Gísla biskups Þorlákssonar. Hún fyrst kvenna hér á landi hefur
verið gift tveimur biskupum, „og hinum síðari meir til gráts en
gleði“ því að Einar biskup dó 24 dögum eftir brúðkaupið.
Hjónabandið var barnlaust. Ragnheiður fluttist aftur að jörð
sinni Gröf á Höfðaströnd og bjó þar í ekkjudómi 18V2 ár. Hún
andaðist 10. apríl 1715, 69 ára að aldri. Lík hennar var „flutt
heim til Hóla og grafið þar að kirkjunni í kórinum.“4°
96