Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 27
BJÖRN ÞORKELSSON, SVEINSSTÖÐUM
haustið.1 Það sagði einhver við Björn, að hestarnir hefðu getað
lifað lengur. Hann sagði að þeir hefðu alltaf fylgt Flugu og hann
vildi ekki láta þá syrgja hana. Mýsill strauk til Flugu, hvar sem
hann var, en það gerði Rauður ekki. Björn gaf þessi hross öll til
afsláttar. Jóhann í Saurbæ fékk Flugu, séra Sveinn í Goðdölum
Mýsil og Helgi á Anastöðum Rauð. Þegar þessi hross voru leidd
burt, gekk Björn til þeirra og kvaddi þau, strauk þeim um
vanga. Þegar Jóhann tók við Flugu, sagði Björn við hann, að
Fluga væri svo þekkt, að hann vonaðist eftir að hann frétti það,
ef hann brúkaði hana. Jóhann svaraði, að hann vonaðist eftir að
hann frétti það ekki með sanni.
Þriðji hestur undan Flugu var Léttfeti, sem Sigurlaug Brynj-
ólfsdóttir fékk. Hann var fremur smár, skeiðhestur mikill með
ljúfa lund.
Jarpur af Flugukyni var seldur Arna á Geitaskarði. Hann var
undan Flugu yngri, nokkuð stór, skapmikill og glettinn. Fluga
yngri var lík á lit og móðir hennar, en heldur stærri. Hún var
aldrei tamin.
Gráskjónukyn. Björn keypti þrjú hross að Kristínu Stefáns-
dóttur í Breiðargerði, þegar hún fluttist til Ameríku. Það var
rauður hestur, er síðar varð reiðhestur Björns, þá líklega tveggja
vetra. Gráskjóttur hestur, folald, er síðar varð reiðhestur
Jóhannesar. Þriðja hrossið var gráskjótt hryssa, er síðan var allt-
af kölluð Gráskjóna. Þessi hross öll voru undan sömu hryssu.
Gráskjóna var ekki tamin, en bandvön. Hún varð 20 vetra og þá
seld til afsláttar Jóni Jóhannessyni á Hóli fyrir 30 krónur.
Hestar undan Gráskjónu:
1. Gráhöttur, dökkur um höfuð, seldur séra Jakobi Benedikts-
syni í Glaumbæ.
2. Grákúfur, séra Vilhjálmur Briem í Goðdölum keypti hann,
var talinn góður hestur.
1 Reiðhestur Björns hét Hörður, en var venjulega kallaður Rauður.
25