Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 134
SKAGFIRÐINGABÓK
Guðbrand Þorláksson er sagt, að legsteinn Halldóru hafi verið
við hliðina á gröf Guðbrands biskups.80 Sjá hér á eftir.
Guðbrandur Þorláksson: Við getum þakkað þeim Eggert
Olafssyni og Bjarna Pálssyni að hægt er að segja nokkuð
nákvæmlega til um hvar legstaður Guðbrands biskups var. Þeir
félagar komu í Hóla 9. september 1755 og segja í dagbók sinni
(í lauslegri þýðingu): „Guðbrandur biskup hvílir utarlega í
kirkjunni, lítið eitt norðan megin, undir einföldum, skrautlaus-
um legsteini, með þessari áletrun.“81 Síðan fylgir grafskriftin,
nokkuð afbökuð, sem sýnir að hún er tilgreind eftir minni. Til
viðbótar þessum upplýsingum er í Djáknaannálum sagt, að bein
Guðbrands hafi verið tekin upp sumarið 1760, þegar grafið var
fyrir undirstöðum stöpulsins (forkirkjunnar).82 Af þessu
tvennu er ljóst, að gröf Guðbrands hefur verið undir norður-
vegg forkirkjunnar.
Þorlákur Skúlason var grafinn „yfir frá leiði herra
Guðbrands, karlmannamegin", þ.e. að sunnanverðu.83 Leg-
staðir þeirra Þorláks og Guðbrands hafa því verið hvor sínum
megin við gangveginn í Halldórukirkju. Skv. þessu er gröf Þor-
láks Skúlasonar undir miðjum stöpli núverandi kirkju eða litlu
sunnar.
Halldóra Guðbrandsdóttir var „flutt til Hóla og grafin þar
hjá legi föður síns.“84 A grunnmyndinni er gert ráð fyrir, að leg-
staður Halldóru hafi verið norðan við gröf Guðbrands, en það
er ágizkun.
Gísli Þorláksson var jarðsettur „í kór dómkirkjunnar á
Hólum, mitt á millum sinna fyrstu kvenna, Gróu Þorleifsdótt-
ur og Ingibjargar Benediktsdóttur.“85 Vitað er, að þegar grafið
var fyrir norðurvegg steinkirkjunnar, voru upp tekin bein
fjögurra biskupa: Gísla Þorlákssonar, Jóns Vigfússonar, Einars
Þorsteinssonar og Björns Þorleifssonar.86 Það er nokkuð ljóst,
að gröf Gísla biskups hefur verið undir norðurveggnum, beint
undir róðunni miklu. Því til frekari stuðnings má nefna, að vor-
ið 1988 fannst þar undir gólfinu kista, sem í voru látúnsskildir
132