Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 33
BJORN ÞORKELSSON, SVEINSSTOÐUM
Goðdalakirkju, kallaður söngur. Þau bjuggu í Breiðargerði
1864 til 1871 og voru barnlaus. Þegar Steinunn var í hús-
mennsku á Sveinsstöðum, átti hún nokkrar kindur, og Þor-
steinn maður hennar og dóttir hennar Kristín (sú er seldi Birni
á Sveinsstöðum Gráskjónu) voru um tíma á hverju sumri að
heyja handa kindum Steinunnar í Ytrahvarfi og Þrætuhvammi,
en voru þar ekki lengur. Sagt var að Þorsteini þætti lítið til
Steinunnar koma, en hún var mikið eldri.
Guðrún dóttir Steinunnar giftist Lárusi, bróður Andrésar
bónda á Reykjavöllum. Þau fóru til Ameríku. Síðar réðist það,
að Þorsteinn og Steinunn og Kristín dóttir Steinunnar færu til
Ameríku. Steinunni langaði mikið til að komast vestur til dótt-
ur sinnar, en þeim áfanga náði hún ekki. Hún andaðist í hafi
nálægt Færeyjum, þá orðin blind. Hafið varð hvílurúm hennar.
Vorið sem baðstofan á Sveinsstöðum var byggð, svaf fólkið
frammi í stofu. Hún var byggð nokkrum árum áður. Við smíði
hennar vann Friðrik Pétursson húsmaður í Breiðargerði, faðir
séra Friðriks æskulýðsleiðtoga, en við smíði baðstofunnar
unnu Þórður Pálsson bóndi og smiður í Breiðargerði og Jón
Þorsteinsson bóndi í Gilhaga. Jón var góður bóndi og duglegur
að byggja, byggði upp bæinn í Gilhaga.
Kona Jóns Þorsteinssonar var Þórunn Elísabet, systir séra
Jóns Magnússonar á Mælifelli, en þau voru ekki lengi saman.
Þegar Þórunn var orðin ekkja, var hún á Hofi. Sagt var að hún
væri þá trúlofuð Halldóri Stefánssyni á Víðimýri, sem þá var
fluttur til Sauðárkróks. Það fréttist fram að Hofi, að Halldór
væri á förum til Ameríku. Þórunn ákvað þá í skyndi að fara með
honum. Messað var í Goðdölum og þar var Sigurlaug Brynj-
ólfsdóttir og fleira fólk frá Sveinsstöðum. Þann dag kom Þór-
unn frá Hofi á leið til Ameríku. Það var til þess tekið hvað hún
reið hart, en talið var, að hún hefði viljað flýta för sinni til þess
að ná fundi Halldórs áður en hann væri kominn á skipsfjöl.
Endir þeirrar sögu varð sá, að Þórunn fór til Ameríku, en Hall-
dór ekki.
31