Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 60
SKAGFIRÐINGABÓK
vel þegið af þeim pabba og Símoni. En mér var ekki meira en svo
um þetta góða kaffiboð. Eg var til alls annars frekar kominn í
Stafnsrétt en sitja inni í tjaldi og sötra kaffi. Sá sem í kaffið bauð,
var Sigmar Jóhannsson, bóndi á Steinsstöðum í Tungusveit.
Leit eg hann nú í fyrsta skipti, þann öðlingsmann, en seinna átti
eg eftir að dveljast á heimili hans part úr tveimur vorum, þegar
eg var við sundnám í Steinsstaðalaug- og leið þar vel. I tjaldinu
með Sigmari voru tveir ungir menn, Páll Olafsson á Starrastöð-
um, síðar bóndi þar, og Sigfús Sigurðsson frá Nautabúi. Kaffi-
drykkjan tók auðvitað ekki langan tíma, en mér þótti hann samt
of langur.
En svo hófst fjárdrátturinn. Stafnsrétt var löng og mjó. Dilk-
ur okkar í Eyhildarholti - en við vorum í dilksfélagi með sömu
bændum og í Mælifellsrétt - var við austurenda réttarinnar.
Fyrir bragðið var drátturinn langur og erfiður, enda forin í rétt-
inni með ólíkindum eftir úrfellið undanfarið. Eðjan, þung og
límkennd, tók mönnum jafnvel í miðjan legg, a.m.k. patta eins
og mér. Heyrði eg pabba segja það við Harald á Völlum, að
aldrei fyrr hefði hann orðið því feginn að standa í dyrum. Bót
var í máli, að ýmsar eldri ærnar virtust vita, hvar dilksins var að
leita, og komu því sjálfar í nánd við dyr hans.
En það var fleira, sem vakti athygli mína en fjárfjöldinn og
hið nýstárlega umhverfi. Aldrei hafði eg heyrt jafn mikið
sungið. Það var ekki nóg með það, að hópar væru syngjandi í
almenningnum innan um féð og uppi á réttarveggnum, heldur
fór þarna fram karlakórssöngur eftir öllum kúnstarinnar
reglum. Þarna voru nefnilega saman komnir söngmenn úr
tveimur karlakórum, Heimi í Skagafirði og Karlakór Bólstaðar-
hlíðarhrepps, ásamt söngstjórum beggja kóranna, þeim Jóni
Björnssyni, þá bónda í Brekku, en síðar á Hafsteinsstöðum, og
Gísla Jónssyni frá Eyvindarstöðum í Blöndudal. Þeir kvöddu
nú saman liðssveitir sínar, stilltu þeim upp norðan við réttina,
og þar hófu kórarnir að syngja hvert lagið á fætur öðru, fyrst
hvor kór fyrir sig og síðan sameiginlega. Stjórnuðu þeir Jón og
58