Skagfirðingabók - 01.01.1992, Blaðsíða 41
BJORN ÞORKELSSON, SVEINSSTOÐUM
hér og hvar. Ærnar voru margar nálægt, og smalað sem til
náðist, en samt varð mikill fjárskaði. Eitthvað af heyi var til, en
30 lömb voru skorin undan ám, sem báru í hríðinni. Sigurlaug
Brynjólfsdóttir lét svo um mælt, að sjaldan hefðu lömbin verið
eins falleg nýborin.
Mislingavorið 1882 var víða bjargarlítið í sveitinni, þangað til
hvalur kom á Skagaströnd. Margir bændur fóru að sækja hval,
og veiktust sumir í þeim ferðum. Þetta vor var nálega bjargar-
laust á Hóli, nema mjólkurdropi, þangað til hvalurinn kom.
Sigurlaug vakti þá yfir túninu en börnin á Hóli, Anna og Pétur,
vöktu yfir túninu þar. Þau komu oft út að Sveinsstöðum á nótt-
unni. Sigurlaugu var skammtað til næturinnar. Það var hræring-
ur og mjólk í aski og biti á diski, brauð, slátur og stundum ket.
Sigurlaug gaf börnunum bitann, en borðaði sjálf úr askinum.
Búrið var læst yfir nóttina, en matur Laugu látinn á hillu í eld-
húsinu. Börnin á Hóli voru bráðlát að fá bitann, og voru stund-
um komin áður en allir voru háttaðir.
Sigurlaugu var sett fyrir, hvað hún ætti að gera yfir nóttina,
sópa bæinn á sunnudagsnótt, stundum að þvo plögg og svo að
bera af túninu það sem hreinsað var yfir daginn, meðan það stóð
yfir. Börnin á Hóli hjálpuðu henni að bera af. Ekki mátti hún
ganga um bæinn nema sem minnst, til þess að gera ekki fólkinu
ónæði. Hana langaði til að fara inn og gá að klukkunni, en hlífð-
ist við því. En hún vissi hvað klukkan var, þegar fyrsti sólar-
geislinn roðaði toppinn á Mælifellshnjúknum. Síðan elskaði
hún alltaf Hnjúkinn. Sigurlaug fór að vaka yfir túninu átta eða
níu ára gömul og gerði það fram yfir fermingu. Síðar tók Sigur-
laug Arnadóttir við því starfi.
Mislingasumarið komst enginn baggi inn af töðu fyrr en eftir
höfuðdag. Stundum var verið að taka innan úr föngum suður og
niður á varpanum, til að gefa kúnum á morgnana, þegar hretaði.
Sigurlaug var oft send heim af enginu með hrífurnar til þess að
þíða þær, því tindana klakaði svo, að ekki var hægt að raka með
þeim.
39