Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1981, Síða 15
MULAÞING
13
má nefna Stefán Th. Jónsson á Seyðisfirði o.fl. til dæmis Sigurd
Johansen Seyðisfirði, Gránufélagið s.st. og Orum & Wulff.
— Hefurðu nokkuð hugað að upphafi vélbátaútgerðar á Austfjörð-
um?
— Já, að öllum bátum og skipum með þilfari allt til þessa dags.
— Viltu nefna — við skulum segja — tíu fyrstu vélbátana sem þú
hefur fundið?
— Vorið 1904 kom fyrsti vélbáturinn til Austfjarða — á Seyðisfjörð.
Það var v.b. Bjólfur NS-9, 6,04 tonn að stærð. Eigendur hans voru
Stefán Th. Jónsson og Sigurður Jónsson kaupmenn á Seyðisfirði.
Formaður fyrsta sumarið var Símon Jónasson frá Svínaskála við
Reyðarfjörð. Báturinn var byggður í Frederikssund í Danmörku.
10. okt. sama ár er skráður 3,28 tonna bátur hjá sýslumanninum á
Seyðisfirði. Báturinn var byggður í Reykjavík 1904 og hét Hermes
NS-38, eigandi Magnús Jónsson útvegsbóndi á Landamóti.
Ennfremur er þetta sama ár skrásettur lítill vélbátur, 2,93 tonn að
stærð, frá Búðum við Fáskrúðsfjörð. Eigandi bátsins, sem nefndur var
Karmá SU-201, var P. Stangeland kaupmaður á Búðum. Þessi bátur er
sagður byggður á Fáskrúðsfirði.
Arið 1905 kemur nokkur skriður á vélbátaútgerð á Austurlandi.
Þá kom v.b. Laxinn SU-236, en það eru allar líkur til að hann sé
fyrsti vélbátur með þilfari í Múlaþingi. Hann var byggður í Danmörku
og eigendur voru bræðurnir Símon og Arni Jónassynir á Svínaskála við
Reyðarfjörð og bræðurnir Halldór og Jón Jónssynir á Svínaskálastekk.
Símon hafði áður verið formaður á v.b. Bjólfi eins og áður sagði.
Fjórir vélbátar komu til Norðfjarðar þetta ár. Þeir voru Fram SU-234,
eigandi Jón Eiríksson Nesi í Norðfirði o.fl. Gísli Hjálmarsson kaup-
maður mun hafa lagt fram fé til kaupanna. Annar var Gylfi SU-260,
eigandi Verslun frú Þorbjargar Runólfsdóttur á Nesi. Þriðji Hrólfur
Sturlaugsson SU-263 (Göngu-Hrólfur), eigandi Stefán Stefánsson kaup-
maður á Norðfirði o.fl. — Þessir þrír bátar voru keyptir í Danmörku.
Fjórði báturinn var Víkingur SU-298, byggður á Seyðisfirði af fyrirtæki
sem Stefán Th. Jónsson kaupmaður og Fr. Gíslason úrsmiður stofnuðu
á Seyðisfirði, yfirsmiður var Guðfinnur Jónsson. Eigendur bátsins voru
Lúðvík Sigurðsson kaupmaður Norðfirði og Bjarni Hávarðsson Norð-
firði.
A þessu ári 1905 fékk Konráð kaupmaður Hjálmarsson í Mjóafirði bát
sem hann nefndi Hrossabrest SU-331. Nafnið mun vera tilkomið út af
skellum í vél bátsins.