Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1981, Blaðsíða 154
152
MÚLAÞING
Þessi undirbúningur fór ekki framhjá blaðinu Austra á Seyðisfirði og
þar sagt 20. janúar 1905:
„Á fundi á Egilsstöðum í haust var rætt um hvort bændur skyldu eigi
stofna hlutafélag til að útvega sér mótorbát er gengi á Lagarfljóti.
Undirtektir á fundinum voru góðar, og tjáðu margir sig fúsa til að taka
þátt í fyrirtækinu og leggja hlut í það.
Hugmyndin um flutningsbát er ekki ný, en hér áður var talað um
gufubát, en sú hugmynd hlaut auðvitað að vera dauðadæmd, meðan
aðflutningar til Héraðs eru jafnerfiðir og nú eru þeir, þar sem það
hlyti að vera óbærilega dýrt að flytja þau kol, er báturinn þyrfti að
brúka.“
Síðan eru í Austra taldir kostir mótorbáta umfram gufubáta, steinolía
ódýrari og betri í flutningum en kol. Einnig er getið uppástungu um að
bátur á Lagarfljóti gangi fyrir ,,rafurmagni“, en blaðið telur það eigi
oflangt í land vegna skorts á rafvirkjunum og ræðir það ekki nánar.
Því má skjóta hér inn í að vélbáturinn er aðeins þrem árum á eftir
þeim fyrsta á landinu, þeim sem keyptur var til Isafjarðar 1902.
Hins vegar eru hugmyndir um rafknúinn bát vart framkvæmanlegar á
þessum tíma.
Þá ræðir blaðið um gagn og gaman af báti á fljótinu: „Allt sem miðar
að því að efla ánægju og fjör í landinu ber að styðja. Hvort mundi ekki
mörgum þykja unaðslegt að fara á bát í góðu veðri upp í Hallormsstaða-
skóg?“
Síðan eru settar fram hugmyndir um væntanlegan bát, gerð hans og
siglingarhæfni. Hann ætti að rista grunnt, svo að „hann geti gengið eins
langt úteftir og inneftir fljótinu og unnt er. Hann ætti að geta farið út
undir Steinsvað, eflaust upp að Brekku og ef til vill upp að Hrafnkels-
stöðum þegar vöxtur er í fljótinu.“
Það er best að lofa Austra að halda áfram. Hinn 11. febrúar 1905
segir í grein undir fyrirsögninni: „Mótorbáturinn á Lagarfljóti“:
„Eins og við bjuggumst við hafa framkvæmdir Héraðsmanna í því
máli verið mjög skjótar og myndarlegar.
Hlutafélag er þegar myndað með 5000 kr. stofnfé.
Voru nú fyrir nokkrum dögum síðan sendir 2 menn hingað til
Seyðisfjarðar til þess að semja um kaup á mótorbát á Lagarfljót.
Komust samningar á í því efni milli þeirra og Stefáns Th. Jónssonar
kaupmanns, umboðsmanns mótorverksmiðjunnar Dan.
Báturinn á að vera 31 fet á lengd og geta flutt 60 tunnu þunga.
Mótorinn á að hafa 6 hesta afl.