Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1981, Page 155
MULAÞING
153
Á Stefán að skila bátnum með mótornum í upp á Egilsstöðum um
miðjan júnímánuð n. k. fyrir alls 3000 kr.
Báturinn á að vera úr eik og að öllu hinn vandaðasti. Ætlar Stefán að
láta byggja hann upp við Lagarfljót. Álítur það heppilegra en að fara
með bátinn tilbúinn upp í Os [ Lagarfljótsós] og síðan upp allt Fljót og
verða að draga hann á landi fyrir fossinn og steinbogann.“
Þetta mun hafa gengið svo til sem ráð var fyrir gert og Stefán staðið
við öll sín loforð við kaupendur bátsins. Hins vegar hverfur hann frá því
ráði að láta smíða bátinn í efra, en lætur gera hann á Seyðisfirði — og
um vorið lætur þessi farkostur úr höfn og siglir á Lagarfljótsós. Um þá
ferð og áframhald liennar inn fljótið er stutt klausa í Austra 23. júní
vorið 1905:
„Lagarfljótsbáturinn.
Flutningur hans gekk fljótt og vel. Honum siglt viðstöðulaust upp
Fljót, aðeins dreginn fyrir Steinboga og Foss.“
Gjarnan hefði hún mátt vera lengri sagan af því þegar fyrsti mótorinn
gall innan fjallahrings Héraðs.
Næsti stjórnarfundur var haldinn á Arnheiðarstöðum 26. júní. Ekki
er minnst á í fundargerðinni að báturinn sé kominn, en ljóst þó að svo er
og hefur sennilega komið um miðjan júní eins og um var samið.
Á fundinum er samin áætlun fyrir bátinn ,,frá þessum tíma til
ágústloka.“ Hann á að hefja reglubundnar ferðir f. júlí frá Egilsstöðum
kl. 9 og frá Brekku kl. 4. Annan júlí frá Egilsstöðum kl. 10, ef nægur
flutningur fæst. Síðan eru áætlaðar 8 ferðir í júlí og hefjast ýmist frá
Egilsstöðum eða Brekku eftir því hvar báturinn er staddur frá síðustu
ferð. Frá ágústbyrjun er ferðum ekki raðað niður að sinni, en þó
ákveðnar sunnudagsferðir hverja helgi, frá Egilsstöðum kl. 9 og frá
Brekku kl. 5.
Síðan er gengið frá far- og farmgjaldaskrá:
Fyrir Fyrir
mann 200 pund
Egilsstaðir - Hreiðarsstaðir, Beinahvammur 0.60 0.40
— - Vallanes, Ás 0.70 0.45
— — Skeggjastaðir, Mjóanes 0.80 0.50
— - Hafursá, Arnheiðarstaðir 0.90 0.55
— — Hallormsstaður, Brekka 1.00 0.60