Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1981, Page 156
154
MÚLAÞING
Annars staðar en á endastöðvunum, Egilsstöðum og Brekku, verður
því aðeins viðkoma að gefið verði merki er báturinn fer um. — Merki
mun hafa verið gefið með því að setja upp hvíta veifu eða breiða hana á
áberandi stað, t. d. á bæjarþekju.
Mannflutningar skulu staðgreiddir, en greiðslum fyrir vöruflutninga
lokið í haustkauptíð.
Bátstjóri er ráðinn á þessum fundi Tryggvi Olafsson og fær kr. 4.50
fyrir hverja ferð milli endastöðva (líklega fram og til baka, en það
kemur ekki fram). Hann á að ráða menn til upp- og útskipunar og
sömuleiðis að ráða aðstoðarmann sem hafi 3 kr. í kaup fyrir hverja ferð.
Aðalfundur árið 1906 var haldinn á Arnheiðarstöðum 24. mars. Þar
voru afgreiddir reikningar (sem hafa ekki varðveist), gengið frá félags-
lögum og gerð starfsáætlun.
Helstu ákvæði félagslaganna voru þessi:
Nafn: „Mótorbátsfélagið Lagarfljótsormurinn. Heimili: Brekka. Til-
gangur að greiða fyrir hvers konar flutningum á Lagarfljóti.
Félagið er hlutafélag með 5 þúsund króna höfuðstól, er skiptist í 500
hluti á 10 krónur hver.
Hluthafar greiði skaða sem félagið kann að verða fyrir.
Þeir fá afhent prentuð hlutabréf.
Þeir fá rentur samkvæmt rentuseðluin sem félagið gefur út.
Varasjóð skal mynda af ágóða félagsins og ávaxta í bönkum eða
tryggum sjóðum. Þegar varasjóðurinn er orðinn 2500 krónur skiptist
ágóði milli hluthafa samkvæmt hlutabréfaeign.
Félagsdeildir skulu vera fjórar, Valla-, Fella-, Fljótsdals- og Jökul-
dalsdeild. Deild getur talist með 50 hlutabréfum.
Aðalfundur í ársbyrjun, í síðasta lagi í mars.
Formaður kosinn sér til þriggja ára í senn og með honum í stjórn 2
menn. Skal einn kosinn ár hvert, kjörtími því 3 ár (nema fyrstu 2
árin). Endurskoðendur einnig kosnir.
1 stjórnina voru kosnir á þessum fundi: Jón Bergsson formaður og
með honum Sölvi Vigfússon og Jónas læknir Kristjánsson; varamaður
Sigurður Einarsson í Mjóanesi.
Næstu verkefni stjórnarinnar voru þessi:
Samþykkt að kaupa smábát af Brynjólfi á Ási fyrir 50 krónur og mun
hafa átt að notast í skjökt.
Farmgjöld til Mjóaness og Skeggjastaða skulu lækka um 5 aura fyrir
hestburðinn og afsláttur á fargjöldum skal verða 20% fyrir „tour-
retour". Viðkomustöðum má fjölga ef þörf krefur.