Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1981, Page 190
188
MULAÞING
nýta [>á jarðfræðiþekkingu, sem er til staðar. Ennfremur myndi slík
samantekt verða öllum jarðvísindamönnum, sem vinna á svæðinu
ómetanleg hjálp.
Eg tel það mjög verðugt verkefni fyrir landshlutasamtök sveitarfélaga
eða hliðstæð samtök að beita sér fyrir að slík samantekt verði unnin
fyrir fjórðunginn. Hugsanlegt er að hún verði unnin í samvinnu við
einhverja jarðvísindastofnun. Vissulega mundi þetta kosta töluverða
fjárfestingu um árabil, en ef ég þekki jarðfræðiáhuga almennings rétt,
mun lipurlega skrifuð bók um þessi efni skila þeirri fjárfestingu að
verulegu leyti til haka á fáum árum.
Hagnýt jarðefni á Austurlandi
Eg vil að lokum drepa aðeins á nokkur hagnýt jarðefni, sem hafa og eru
talin athyglisverð vegna hugsanlegrar vinnslu. Sum þeirra hafa nokkuð
verið rannsökuð en önnur lítið sem ekkert. Um flest þeirra má segja
það, að ekki er ástæða til að álíta að þau geti gefið af sér neinn
síldargróða, en aftur á móti er vel hugsanlegt um mörg þeirra, að þau
geti reynst arðvænleg er fram líða stundir. Það er því full ástæða til að
veita þeim athygli og verja nokkru fé til rannsókna á þeim. Þessum
efnum má skipta í nokkra jarðfræðilega og jarðefnafræðilega flokka:
Holufyllingar, þ.e. útfellenga steindir (secondary minerals), verða
til við það að heitt vatn, ríkt af uppleystum efnum, seytlar í gegnum
bergið og úr því falla út steindir í holrúmum og glufum í því. I þessum
flokki eru silfurberg, geislasteinar og margvíslegar kvartssteindir, sem
gjarnan eru notaðar til skrauts, svo sem jaspis, opal, kalsedon,
glerhallar, ametyst o. fl. Eins og fyrr er getið verður silfurberg trauðla
nýtt til annars í dag heldur en sem safngripir. Geislasteinar hafa
nokkuð verulegt gildi til iðnaðarnotkunar, eins og nú stendur til að
rannsaka. Ennfremur eru fagurlega skapaðir geislasteinar mjög eftir-
sóttir sem safngripir. Margvíslegir kvartssteinar eru mjög eftirsóttir
sem unnir skrautsteinar í hringa, hálsmen og hvers konar skrautiðnað.
Sem hráefni eru þeir ekki í sérlega háu verði. Það er fyrst og fremst
slípun þeirra og vinnsla er gerir þá verðmæta. Nú er mikið um það rætt,
að erlendir ferðamenn safni hér og flytji úr landi mikið magn af hvers
konar holufyllingum og sérstæðum steinum. Ég tel því brýna nauðsyn
bera til að koma hér einhverju skipulagi á. Það er mjög trúlegt, að það
megi koma á verulegum skrautiðnaði í því sambandi og selja bæði sem
safngripi, skrautsteina og listiðnað. Æskilegt er að komið verði á