Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1996, Side 39
Sigmar Magnússon
Fjallaskörð og leiðir
í Fáskrúðsfirði
Stuðlaheiði
Leiðin um Stuðlaheiði er frá Dölum í
Fáskrúðsfirði til Stuðla í Reyðarfirði. Leið-
in var allfjölfarin fyrr á tímum, en er nú
sjaldfarin. Þegar farið er frá Dölum liggur
leiðin fyrst inn með hlíðinni ofan við Dala-
engið inn hjá Hrafnagili. Þá hækkar leiðin
og liggur efst á Upsinni inn á Upsahrygg og
tekur þá við Stuðlaheiðardalurinn. Hrútá
rennur eftir dalnum og er vegurinn utan við
hana inn að Heiðarvaði. Þar er farið yfir
ána og komið innst í Hrútafellskinnina.
Eftir það er farið norðan í Hrútafellinu inn
að Jökullæk, sem kemur úr fönn sem er
norðan í Hrútfellinu, og farið er yfir lækinn
ofan við foss sem er í honum. Þegar þang-
að er komið er bein leið í sjálft Stuðlaheið-
arskarðið sem blasir nú við á milli Stuðl-
anna nyrðri og syðri.
I skarðinu sást móta fyrir tveim vörðum
en eru nú sennilega horfnar. Úr skarðinu
liggur leiðin í vestur en síðan norður á
Heiðarbrún og var þar einnig vörðunefna
'ítil. Þar liggur leiðin til austurs ofan í
Heiðarbotninn og úr honum niður í Vegg-
hamra, þá efri, niður á Vegghamrabrún og
eftir henni út í Sniðið og þaðan niður í
Ferðamannabotn. Yfir tvo læki var farið á
Vegghamrabrúninni á báðum leiðum. Úr
botninum er farið niður eftir melhrygg,
Langahrygg, meðfram djúpu gili og út yfir
það. I því er allstór lækur, Þverá. Er þá
komið á neðri Vegghamra og þarf að fara út
að næsta gili til að komast niður fyrir þá og
er eftir það skammt niður að Stuðlatúni.
Þessi leið sem hér hefur verið lýst, var bara
farin á sumrum og áður en snjór og gaddur
kom í Vegghamrana, sem þá gátu orðið
hættulegir. Var þá ekki farið niður Vegg-
hamrana úr Heiðarbotninum, heldur farið
inn í Hjálmárdalsbotninn og þar niður með
Hjálmárdalsánni (Króaránni). Var það bratt
og hættuminna, en lengra. Milli Dala í Fá-
skrúðsfirði og Stuðla í Reyðarfirði var tal-
inn fjögurra tíma gangur um Stuðlaheiði.
Þegar komið er vestur úr Stuðlaheiðar-
skarðinu getur leiðin legið í þrjár áttir, þ.e.
niður í Reyðarfjörð, sem áður er lýst, í öðru
lagi til Breiðdals um Gagnheiði og í þriðja
lagi um Aura til Skriðdals. Ef fara skal til
Breiðdals er snúið til suðurs þegar komið er
vestur úr Stuðlaheiðarskarðinu og stefnt í
Utan við Búðir eru eftirfarandi fjallaskörð og leiðir milli Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar; Örnólfsskarð,
Hrossadalsskarð, Skildingaskarð, Staðarskarð, Halaklettsskarð, Urðarskarð, Síuskarð, Sóleyjarskarð,
Engihjallaskarð, Kolmúlaskarð og Rolluskörð.
Ljósm. Skarphéðinn G. Þórisson 29. júní 1995.
37