Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1996, Page 45
Eyjar í jökulhafi
S mj örfj allgarður
Jökulvana landsvæði á síðasta jökulskeiði í fjallgarðinum
á milli Vopnafjarðar og Héraðs
/
norðanverðu Austurlandi, á milli
Vopnafjarðar og Héraðsflóa gengur
mikill fjallabálkur í sjó fram. Ekki
hefur hann haft neitt samheiti, nefnist helst
Krossavíkuríjöll í Vopnafirði, Hlíðarfjöll
þar senr snýr að Héraði og Smjörfjöll þar
sem hæst ber. Hér verður hann nefndur
Smjörfjallgarður. Greinin fjallar um nokkra
þætti í sögu landmótunar í fjallgarðinum á
síðasta jökulskeiði. Þykkar frostveðraðar
urðir, stallar hátt í hlíðum og miklir urðar-
bingir eru taldir sýna að fjallgarðurinn hafi
staðið að mestu leyti utan jökulskjaldarins
sem talið er að hafi legið á Islandi á síðasta
jökulskeiði. Stangast þetta verulega á við
skoðanir margra er ritað hafa um stærð
meginjökuls er lá yfir íslandi á síðasta jök-
ulskeiði.
1 ■ mynd. Vopnafjörður - Smjörfjallgarður - Hérað,
helstu kennileiti og freramyndanir.
Atlar teikningar með þessari grein eru eftir höfund
hennar.
Inngangur
Island og bergflekinn umhverfis landið
hefur verið að byggjast upp fyrir áhrif lan-
dreks og eldvirkni í nokkra tugi ármilljóna
og í bergi á útjöðrum landsins má lesa sögu
þess 15-16 milljón ár aftur í tímann. Lengst
af virðist loftslag hafa verið hlýtt og jöklar
varla náð að myndast nema á háfjöllum og
greinst hafa merki um slíkt í 5-6 milljón ára
görnlu bergi. I jarðlögum á Austurlandi fara
að finnast ummerki um kólnandi loftslag
með vaxandi jöklum fyrir 3-4 milljónum
ára. Isöldin gengur smásaman í garð og fyr-
ir liðlega 2 milljónum ára virðist hún vera
orðin hörð, með loftslagssveiflum þar sem
skiptast á fremur stutt hlýskeið og lengri
jökulskeið.
Jarðvísindamenn hafa lengi skilgreint
síðasta jökulskeið þannig að það hafi byrjað
fyrir um 70.000 árum, það hafi orðið harð-
ast fyrir 18.000 árum og að því hafi lokið
fyrir um 10.000 árum, er loftslag komst
með nokkrum afturkippum í svipað horf og
nú ríkir.
Talið lrefur verið að þegar ísaldarvetur-
inn var hvað harðastur, hafi um 30% þurr-
43