Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1996, Page 133

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.1996, Page 133
Frá Jökuldalsfólki og Eiðaþinghármönnum en óáleitnari og meinlausari“! Það skyldi þó aldrei vera að meinleysið hafi valdið orðsporinu um heimskuna? Eða hrekkleys- ið? En þrátt fyrir þessa annmarka er sagt að hann kæmi sér heldur vel. Sagt er einnig að hann væri áleitinn með kvonbænir á ýmsum stöðum, og gat það hafa komið í ljós er hann var á flakkinu um nágrannasveitir. En þó hann væri talinn loðinn um lófana kom það víst ekki að haldi við kvonbænirnar að sögn, og einhverjir fundu snöggan blett á honum og uppnefndu hann kóngdóm. Það þurfti alltaf að finna eitthvað til gamans í fásinninu, jafnvel þó að gamanið stundum gæti reynst grátt, en sagt er þó að Bjöm fyrtist ekki neitt við þessa gamansemi sveit- unga sinna. Líklegt er einnig að baktal sveitunga hans hafi flogið vítt um sveitir, og þeir hafi þá hvorki skeytt um skömm né heiður! Hins vegar mun mega segja að það lýsi Birni sem skynsömum rósemdarmanni að hann skyldi lítt fyrtast við sveitunga sína þrátt fyrir vafasaman söguburð. Drauma Rósa Sigmundur M. Long getur og um tildrög þess að þau Bjöm og Rósa kynntust. Hún kvað hafa verið draumspök og dreymt að hún mundi eignast son Óla í Merki fyrir mann, en gallinn var bara sá að Óli í Merki átti bara dætur, en henni var þó sagt að máske gæti verið átt við stjúpson hans, Björn að nafni. Sagt er og að Rósa tæki sér ferð á hendur upp á Jökuldal til að ganga úr skugga um þetta, og getur það allt verið satt °g rétt. Sagt er að Bjöm gripi tækifærið, og Rósa væri líka heldur myndarleg stúlka, ekki smáfríð, en feit og fönguleg, svo ekki var turða að Björn hikaði ekki. Enn á ný kemur fram hvílíkur kvenkostur Rósa hefur verið, og raunar má segja að umsögn um þau, þegar allt er skoðað og gróusögur dregnar frá, bendi til þess að þau hafi verið ágætismanneskjur. En um það hvort Björn fékk einhvern tímann móðurarf úr Merkis- búi, hefi ég ekki fundið neinar heimildir, og hygg ég raunar að það hafi varla verið mik- ið, og skilgetnir erfingjar stóðu nær, og auk þess dó ekki móðir hans fyrr en 1867, og hafði þá verið fimm ár ekkja, líklega mest á Hákonarstöðum hjá dóttur sinni og tengda- syni, þeim Guðrúnu og Sigfinni og eitthvað hlýtur Guðrún að hafa fengið af arfinum, enda hún skilgetin lögerfingi. Ekki er til sóknarmannatal úr Eiðasókn eftir 1866, en Bjöm Bjamason á Asgeirs- stöðum er skírnarvottur 1872 er barn frá Þrándarstöðum er skírt, en hann andaðist hinn 8. september um haustið, og kemur það fram í skiptabók, en skipti á búinu fóru fram hinn 17. febrúar árið eftir, og eru þar taldir tjórir erfingjar; ekkjan og þrjú börn hennar, þau Gunnar 10 ára, Bjarni þriggja ára og Sigríður á Hákonarstöðum 5 ára. Fram kemur dálítil eign í Ásgeirsstöðum og skiptist það í fjóra parta milli erfingjanna, auk nokkurrar smáupphæðar, en strax haustið áður sýnist hafa farið fram uppboð á eignum þeirra Rósu, en ekki hefur mér tekist að finna uppskriftar- og/eða uppboðs- bók frá þessum tíma. Má þessi jarðarpartur hafa verið það sem Björn fékk í arf eftir föður sinn á sínum tíma, en skipti eftir hann finnast ekki í skiptabókum. Um mikla fjár- eign Bjöms hefur varla nokkurn tíma verið að ræða, og mun mála sannast að flestir ein- yrkjar, þ.e. þeir sem ekki höfðu vinnufólk til heyöflunar gátu aðeins átt tiltölulega fá- ar kindur, og kemur það fram í skiptabók- um. Flest árin sem þau Rósa bjuggu á Ás- geirsstöðum voru afarhörð eins og fyrr er fram komið, og einnig má minna á að öll amboð til heyöflunar voru á þessum tíma ærið frumstæð, þ.e. bæði Ijáirnir, en einnig hrífumar og stóð það heyskapnum mjög 131
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180

x

Múlaþing: byggðasögurit Austurlands

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Múlaþing: byggðasögurit Austurlands
https://timarit.is/publication/1153

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.