Þjóðmál - 01.09.2014, Blaðsíða 68
Þjóðmál haust 2014 67
Með staðarnafninu Yarmouk er verið
að vísa í orustuna þar í ágúst 636 sem
breytti gangi heimssögunnar en þá hófst
hernám íslam á öllu svæðinu frá Spáni í
vestri til Indlands í austri með blóðbaði,
jihad, sem hefur staðið að mestu í 1400
ár með einhverjum smáhléum . Talið er að
múslímar hafi felt 270 milljónir manna af
öðrum trúarbrögðum í viðleitni sinni að ná
heiminum undir Allah .
Jihad er enn í fullum gangi um heim allan
og þar með talið á Íslandi þó að það sé hér
ennþá á mjúku nótunum eins og venjan
er meðan múslímar eru fáir og veikburða
í samfélögum . Þarna má líta á fordæmi
Múhammeðs sem þótti hálfmeinlaus en
þreytandi götutrúboði meðan hann var í
Mekka en gerðist grimmur herkonungur
þegar honum óx ásmegin í Medína þar
sem hann fékk skjól hjá gyðingum, sem þar
bjuggu og kölluðu bæ sinn Yathrib . Hann
þakkaði greiðann með því að drepa þá alla
nema konur og börn, sem voru seld í ánauð .
Gyðingar höfðu neitað að viðurkenna hann
sem spámann sinn og hæddu hann fyrir
vankunnáttu um gyðingdóm . Í Yathrib gaf
Múhammeð fordæmi um hvernig múslímar
eiga að yfirtaka öll samfélög sem þeir flytja
til . Líka Ísland! Tímatal múslíma er miðað
við flutning hans til Yathrib/Medína árið
622 .
Saga jihad er ekki sögð í háskólum
Vesturlanda og er þess vandlega gætt að
þagga niður í þeim, sem vilja segja þá sögu .
Fyrsti stóri ósigur byzantíska heimsveldis-
ins eða hins kristna heims fyrir íslam við
Yarmouk er ekki almennt kunnur kristn-
um samfélögum Vesturlanda . Múslímar
þekkja þá sögu vel og minnast hans oft eins
og Khaybar, þar sem þeir unnu lokasigur á
gyðingum á Arabíuskaganum . „Khaybar,
Khaybar, ya yahud, jaish Muhammad
sayud,“ syngja múslímar oft á góðum
stund um . „Khaybar, Khaybar, gyðingar,
nú koma herir Múhammeðs til að drepa
ykkur .“ Þetta var t .d . sungið um borð í
Mavi Marmara 2010 þegar tyrkneskir
islamistar, þýskir þing menn Linke-flokks-
ins og fleiri einfeldningar ætluðu að rjúfa
með valdi hafnbann Ísraels á Gaza . Linke-
menn héldu að þarna væri verið að syngja
arabíska útgáfu á „Nú blika við sólarlag
sædjúpin köld“ .
Háskólasamfélagið, stjórnmálamenn og
kirkjan á Vesturlöndum láta sig lítt varða
þó að nú sé verið að heyja lokastríð gegn
kristnum mönnum á frumsvæðum kristni í
heiminum og enn sé verið að drepa og kúga
kristna menn um gjörvöll lönd þar sem
múslímar ráða ríkjum . Við horfum upp á
kristna og aðra minnihlutahópa í þessum
löndum, skotna, afhausaða, krossfesta,
brennda, grafna lifandi, höggna, stökkt á
flótta, konum og stúlkubörnum nauðgað
eða seld í ánauð og ypptum bara öxlum .
Háskólasamfélagið, stjórn-málamenn og kirkjan á
Vestur löndum láta sig lítt varða þó
að nú sé verið að heyja loka stríð
gegn kristnum mönnum á frum-
svæðum kristni í heiminum og enn
sé verið að drepa og kúga kristna
menn um gjörvöll lönd þar sem
múslímar ráða ríkjum . Við horfum
upp á kristna og aðra minni hluta-
hópa í þessum löndum, skotna,
afhausaða, krossfesta, brennda,
grafna lifandi, höggna, stökkt á
flótta, konum og stúlkubörnum
nauðgað eða seld í ánauð og
ypptum bara öxlum .