Þjóðmál - 01.09.2014, Blaðsíða 78
Þjóðmál haust 2014 77
Sjálfstæðiskosningar Skotlands:
Kunnasta sagnfræðingi Skota
snerist hugur á loka sprettinum
— ætlar að segja já!
Hinn 18 . september 2014 ganga Skot-ar til þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálf-
stæði sitt . Kannanir hafa sýnt að sjálfstæð-
inu verði hafnað . Þegar dró nær kosningun-
um minnkaði bilið milli þeirra sem takast á
um málið .
Sir Tom Devine, kunnasti og virtasti sagn-
fræðingur Skota, lagði skoskum sjálf stæðis-
sinnum mikið lið sunnudaginn 17 . ágúst
í viðtali við breska blaðið The Observ er þar
sem hann sagðist ætla að segja já í þjóðar-
at kvæðagreiðslunni um sjálfstæði Skotlands
hinn 18 . september 2014 .
Í tilefni af viðtalinu sagði á vefsíðu The
Guardian að fulltrúar hvorugs hópsins, sem
berst fyrir málstað sínum fyrir þjóðar at-
kvæða greiðsluna, hefðu opinberlega leitað
eftir stuðningi frá Devine . Hvor um sig
hefði hins vegar talið mjög mikils virði að
sá maður sem talinn er fremsti fræði- og
mennta maður Skotlands styddi málstað
sinn .
Í samtalinu segir Devine að í upphafi
baráttunnar hafi hann verið eindreginn
and stæðingur sjálfstæðis og ætlað að segja
nei þótt hann aðhylltist eins mikið sjálf-
stæði fyrir Skota og unnt væri innan ramma
Samein aða konungdæmisins (United King
dom, UK) . Hann hafi trúað á að efna hagur
Skota blómstr aði í meira sannfær andi
stjórn mála legri og menn ingarlegri umgjörð .
„Þetta hefur verið ansi langt ferðalag fyrir
mig og það eru aðeins tvær vikur síðan ég
komst að niður stöðu um að ég ætla að segja
já,“ segir hann .
„Skoska þinginu hefur tekist að mynda
hæfa ríkisstjórn og hún kemur fram
fyrir hönd skosku þjóðarinnar sem hefur
tileinkað sér sósíal-demókratísk viðhorf og
stjórnmálaleg gildi sem komu til sögunnar
og festu rætur í velferðarsamfélaginu seint á
fimmta áratugnum og hinum sjötta .
Það er meðal Skota sem best hefur tekist
að varðveita hina bresku hugmynd um sann-
girni og samúð þegar litið er til stuðnings
og íhlutun af hálfu ríkisvaldsins . Hið
einkennilega er að Englendingar hafa stefnt
í aðra átt síðan á níunda áratugnum .“
Hann skilgreinir einnig þróun Sameinaða
konungdæmisins (United Kingdom) síðan
það kom til sögunn ar árið 1707, hvers
vegna báðar þjóðir sættu sig við það og