Þjóðmál - 01.09.2014, Blaðsíða 10
Þjóðmál haust 2014 9
forstjóra . Sævar Freyr sagðist hafa þekkingu
á síma- og fjarskiptamálum . Hlutverk hans
er að gera 365 gildandi á því sviði .
Mánuði eftir að Kristín varð útgefandi,
mánu daginn 25 . ágúst 2014, var Mikael
Torfa son rekinn úr stóli aðalritstjóra 365 .
Mika el varð ritstjóri 5 . mars 2013 en
nú tók Kristín skyndilega við af honum .
Dag inn eftir birtist leiðari í Fréttablaðinu
eftir Ólaf Þ . Stephensen ritstjóra um að
eigendur fjölmiðla beittu ýmsum ráðum til
að hlutast til um ritstjórn þeirra . Þennan
sama dag tilkynnti lögmaður Ólafs forstjóra
365 miðla að ritstjórinn liti svo á að
ráðningarsamningi hans við fyrirtækið hefði
verið rift og hann væri óbundinn af honum .
Boð um breytt starf hjá fyrirtækinu, sem átti
að fylgja ritstjóratitill, hefði engu að síður
falið í sér verulega breytingu á verkefnum,
starfsskyldum og ábyrgð . Ráðning tveggja
nýrra ritstjóra fæli það sama í sér . Ritstjóri
við hlið Kristínar varð Sigurjón Magnús
Egils son sem lengi hefur verið viðloðandi
miðla gamla Baugsveldisins og marga
fjöruna sopið vegna þjónustu sinnar við Jón
Ásgeir .
Að kvöldi þriðjudags 26 . ágúst 2014 kom
hópur fólks af ritstjórn og öðrum deildum
365 miðla ehf . saman við heimili Ólafs Þ .
Stephensens, þar las Mikael Torfason leiðara
Ólafs um frelsi ritstjórna gagnvart eigendum
fjölmiðla og Ólafi var færður blómvöndur
en hann hafði gegnt starfi ritstjóra frá 24 .
febrúar 2010 .
Enginn þeirra sem átti aðild að þessari
skyndilegu uppstokkun á ritstjórn 365 miðla
gaf neina skýringu á því hvað leiddi til henn-
ar . Hún birtist hins vegar á vefsíðu Við skipta
blaðsins þriðjudaginn 26 . ágúst . Þar segir:
„Málið snerist um frétt úr Fréttablaðinu
sem birtist á miðvikudag [20 . ágúst] um
það að söngvarinn Geir Ólafs hafi boðið
sjón varps kokkinum Guðrúnu Veigu Guð-
mundsdóttur út að borða . Guðrún stýrir
mat reiðslu þættinum Nenni ekki að elda og
er hann sýndur á sjónvarpsstöðinni iSTV .
Frétt in birtist á Vísi.is eins og aðrar fréttir
úr Frétta blaðinu og var hún á netmiðlinum
fram að kvöldmatarleyti sama dag . Heim-
ildir Viðskiptablaðsins herma að Kristín [Þor-
steinsdóttir] hafi hins vegar fengið því fram-
gengt að blaðamaður á Vísi.is tæki fréttina
úr birtingu þar sem hún var talin fjalla á
jákvæðan hátt um samkeppnisaðila 365 .
Frétta menn tóku eftir því síðar um kvöldið
að fréttin hafði verið fjarlægð og birtu hana
aftur eina mínútu yfir miðnætti 20 . ágúst,
þ .e . aðfaranótt fimmtudags .
Þeir Mikael og Ólafur funduðu með
Kristínu um málið á fimmtudag í síðustu
viku [21 . ágúst] til að ræða um málið en af-
skipti Kristínar af fréttaflutningi Vísis voru
talin brjóta í bága við ritstjórnarreglur 365 .“
Eftir áralöng afskipti Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar og handlangara hans af frétta-
miðlun innan fjölmiðlaveldis hans má
með sanni segja að þarna hafi lítil þúfa velt
þungu hlassi . Eigendurnir gleðjast . Nú sitja á
ritstjórastóli einstaklingar sem fara að óskum
þeirra í einu og öllu . Hin opinbera skýring af
hálfu 365 er að með breytingunum eigi að
auka hlut kvenna við ritstjórn .
Hér skal ekki spáð fyrir um lyktir þessa þáttar lekamáls-
ins . Hanna Birna sagði í yfir lýs ingu
sinni að á næstu misserum mundi
hún taka „persónulega ákvörð un
um það með mínum nánustu hvort
stjórnmálin eru minn framtíðar-
staður eða hvort baráttan fyrir betra
samfélagi verði betur háð utan
kerfisins en innan þess“ .