Þjóðmál - 01.09.2014, Blaðsíða 16
Þjóðmál haust 2014 15
Úr 16 . kafla
Ýtt til hliðar — Kosning
forseta réttarins
Um marga áratuga skeið hafði ríkt það skipulag við kjör forseta Hæstaréttar
að dómarar skiptust á um að gegna því
starfi tvö ár í senn . Gengu menn til þess í
ákveðinni röð eftir starfsaldri, þó þannig
að sá sem lét af starfi sem forseti gekk þá
inn í röðina og varð á undan þeim sem
nýskipaðir voru eftir það . Varaforseti var
jafnan kjörinn sá sem skyldi taka við starfi
forseta tveimur árum síðar .
Árin 2010–11 var Ingibjörg Bene dikts -
dóttir forseti og Garðar Gíslason vara-
forseti . Næstur á eftir honum í röðinni
átti að koma Ólafur Börkur Þorvaldsson
og síðan sá sem hér skrifar . Fyrir lá þegar
Ingi björg og Garðar voru kosin, að Garðar
myndi ekki geta tekið við forsetastólnum
af henni frá ársbyrjun 2012, þar sem hann
varð að víkja úr embætti við sjötugsaldur í
október sama ár . Hefði því auðvitað verið
eðlilegt að kjósa Ólaf Börk í embætti
varaforseta fyrir árin 2010–11, þar sem
sýnt var að hann ætti að taka við forsæti
réttarins 2012 en varaforsetatíminn er eins
konar undirbúningstími fyrir forsetastarfið,
eftir því fyrirkomulagi sem ríkti . Þetta
hefur dómaraelítunni ekki þótt fögur
framtíðarsýn .
Að svo stöddu var þó aðeins tekin sú
ákvörðun að kjósa Garðar í embætti
varaforseta þessi tvö ár og því skotið á frest
að ákveða til hvaða aðgerða þyrfti að grípa
til að koma í veg fyrir að Ólafur Börkur
tæki við forsetastarfi í ársbyrjun 2012, svo
að ekki sé nú talað um þau hræðilegu ósköp
að sá sem hér skrifar yrði þá varaforseti og
loks forseti tveimur árum síðar .
Alltaf leggst mönnum eitthvað til . Á árinu
2011 barst réttinum til umsagnar frumvarp
til laga um fjölgun héraðsdómara . Var nú
ekki tilvalið að nota tækifærið til að leggja
til breytingu á fyrirkomulaginu við val á
forseta Hæstaréttar svo að hindra mætti þau
ódæmi sem framundan voru?
Það var gert . Gamli skólafélagi minn,
samkennari og vinur, Árni Kolbeinsson,
var látinn flytja tillögu um breytinguna,
sem hljóðaði um að kjósa skyldi forseta til
fimm ára í senn og varaforseta til jafnlangs
tíma . Sjálfum hafði mér lengi þótt þetta
erfðafyrirkomulag á forsetaembættinu,
sem gilt hafði í marga áratugi, kjánalegt og
reyndar áreiðanlega ekki skynsamlegt út frá
sjónarmiðum um markvissa stjórnun . Þó
að ég vissi vel af hvaða hvötum tillaga Árna
var flutt, ákvað ég að styðja hana . Til þess
var aðeins ein ástæða . Þeir blessuðu menn,
sem fyrir kaldhæðni örlaganna höfðu orðið
samstarfsmenn mínir um nokkurra ára
skeið, skyldu ekki geta komið mér til að
breyta gegn sannfæringu minni um hvað
væri almennt séð besta fyrirkomulagið við
val á forseta réttarins . Það myndi ég ekki láta
eftir þeim . Frumvarp með þessari breytingu
var síðan að tillögu Hæstaréttar samþykkt á
Alþingi með lögum nr . 12/2011 .
Þ ó að ég vissi vel af hvaða hvötum tillaga Árna var flutt,
ákvað ég að styðja hana . Til þess
var aðeins ein ástæða . Þeir blessuðu
menn, sem fyrir kald hæðni örlag-
anna höfðu orðið samstarfs menn
mínir um nokkurra ára skeið,
skyldu ekki geta komið mér til að
breyta gegn sannfæringu minni
um hvað væri almennt séð besta
fyrirkomulagið við val á forseta
réttarins . Það myndi ég ekki láta
eftir þeim .