Þjóðmál - 01.09.2014, Blaðsíða 73
72 Þjóðmál haust 2014
og drepa hvern einasta gyðing, ekki bara
í Ísrael heldur um heim allan . En þetta er
ekki lokamarkmið Hamas heldur að standa
á rústum hvers einasta menningarsamfélags
heimsins til að reisa þar ríki Allah að
fyrirmynd salafista . Þessa framtíðarsýn eiga
þeir með öllum hreintrúuðum múslímum
þó að þeir séu mismunandi opinskáir um
drauma sína og fyrirætlanir .
Af hverju leiða fréttamenn, stjórn mála-
menn, menntakerfið og kirkjan hjá sér
svona staðreyndir? Er þetta öfgafyllra en
svo að unnt sé að trúa því? Ætla Vesturlönd
aftur að gera sams konar mistök og
þegar þau neituðu að hlusta á viðvaranir
Churchills og fleiri um uppgang nasismans?
Þrátt fyrir skýrar lýsingar Hitlers í Mein
Kampf 1926 um fyrirætlanir sínar horfðist
heimurinn ekki í augu við staðreyndirnar
fyrr en tveimur áratugum seinna að föllnum
áttatíu milljónum manna eða um 3% af
öllum íbúum jarðar þá . Nasistar myrtu
tuttugu milljónir manna í fangabúðum . Af
þeim voru 6 milljónir gyðingar, tveir þriðju
hlutar gyðinga í Evrópu .
Ísrael náði undir sig Gaza-svæðinu og
Sínaí-skaganum sem og Samaríu og Júdeu
(vestur bakkanum svokallaða) í 6 daga stríð-
inu 1967 . Egyptaland og Jórdanía höfðu
náð þessum landsvæðum undir sig í stríði
sem þeir ásamt öllum öðrum nálæg um
arabaríkjum efndu til deginum eftir að
Ísraelsríki var stofnað 1948 . Þá var tilgang-
urinn að þurrka Ísraelsríki af kortinu og
hrekja alla gyðinga út í sjó . Aröbum, sem
þá voru á svæðinu, var ráðlagt að flytja sig
af átaka svæðinu meðan væri verið að ljúka
verkinu, sem tæki vart langan tíma . Að því
loknu gætu þeir komið og notið góðs af
her fang inu sem næðist af gjörsigruðum og
fölln um gyðingum . Hið ótrúlega gerðist að
Ísraelar stóðust árásina en Jórdanía náði til
sín Sam ar íu og Júdeu (Vesturbakkanum)
og Egypta land náði sem fyrr segir Sínaí og
Gaza .
Arabarnir, sem flúðu yfir til óvina Ísraels
í stríðinu 1948, fengu ekki borgararét tindi
hjá arabískum bræðrum sínum heldur
lokuðust inni í hernumdum svæðum
undir stjórn Jórdana og Egypta . Þá var
ekki búið að finna upp hugtakið Palestínu-
menn fyrir araba sem lifðu á því svæði
sem áður var kallað Mandate of Palestine
(verndarsvæði Palestínu) undir stjórn Breta
eftir fall Ottómana . Palestína var nafn,
sem Rómverjar gáfu landi gyðinga þeim til
háðungar á 2 . öld eftir Krist . Nafnið vísaði
til fílistea sem voru svarnir óvinir gyðinga
en voru þá löngu horfnir af sögusviðinu .
Endalausar bollaleggingar hafa verið
um Palestínumenn undanfarna áratugi .
Umræðan um þá markast af fádæma öfg-
A rabarnir, sem flúðu yfir til óvina Ísraels í stríðinu 1948,
fengu ekki borgararét tindi hjá
arabískum bræðrum sínum heldur
lokuðust inni í hernumdum
svæðum undir stjórn Jórdana og
Egypta . Þá var ekki búið að finna
upp hugtakið Palestínu menn fyrir
araba sem lifðu á því svæði sem
áður var kallað Mandate of Palestine
(verndarsvæði Palestínu) undir
stjórn Breta eftir fall Ottómana .
Palestína var nafn, sem Rómverjar
gáfu landi gyðinga þeim til
háðungar á 2 . öld eftir Krist . Nafnið
vísaði til fílistea sem voru svarnir
óvinir gyðinga en voru þá löngu
horfnir af sögusviðinu .