Þjóðmál - 01.09.2014, Blaðsíða 76
Þjóðmál haust 2014 75
Þá hafa klerkarnir í Íran heitið því að eyða
Ísrael af kortinu . Talið er að Hamas hafi átt
um tíu þúsund eldflaugar fyrir Gaza-stríðið
núna en að Hezbollah eigi um 100 þúsund
eldflaugar, sem er beint að skotmörkum í
Ísrael . Megnið af þessum eldflaugum er
komið frá Íran . Það er einnig frá Íran sem
mesta ógnun stafar fyrir hið unga ríki Ísrael
sem þeir telja þó að standi á þrjú þúsund ára
grunni . Íranir eru án nokkurs vafa að koma
sér upp kjarnorkusprengju og hafa þróað
eldflaugatækni til að bera þær þess vegna til
Evrópu . Þeir hóta því oft að senda fyrstu
gjöreyðingjarsprengju sína á Ísrael, Litla
Satan, en síðan komi röðin að Stóra Satan,
Bandaríkjunum og Evrópu .
En það eru fleiri hættur, sem steðja að
Ísrael . ISIS hefur m .a . heitið því að koma
Hamas til hjálpar um leið og þeir verða
búnir að festa kalífatið í sessi í Sýrlandi
og Írak og drepa þar alla kufar sem ekki
fallast á að ganga Allah á hönd eða greiða
jiziya eins og kóraninn boðar . Hér er vert
að undirstrika að ISIS fer nákvæmlega eftir
bókinni, þ .e . kóraninum . Lítum á súru
9,29 og súru 9,5:
„Herjið á þá meðal fólks bókarinnar
(kristnir og gyðingar) sem trúa hvorki á
Allah né hinn Efsta Dag né banna ekki
hvaðeina sem Allah og sendiboðar hans
hafa bannað, né viðurkenna trúarbrögð
sannleikans uns þeir greiða jiziya (sérstakan
skatt) með auðsýndri auðmýkt og finna
fyrir undirokun sinni .“
„Þegar hinir friðhelgu mánuðir eru liðnir
drepið þá skurðgoðadýrkendur hvar sem
til þeirra næst . Handtakið þá, umkringið
þá og gerið þeim hvarvetna fyrirsát með
her klækjum . En ef þeir iðrast, hefja reglu-
bundnar bænir og greiða ölmususkatt þá
greiðið götu þeirra .“
Ljóst er að aðilar í Katar styrkja Hamas
og ISIS fjárhagslega . Eins hafa fjármunir og
önnur aðstoð komið frá Saudi-Arabíu og
Tyrklandi . Saudarnir greiða 2–3 mill jarða
Bandaríkjadala á ári (um 300 .000 .000 .000
kr) í útbreiðslu wahhabisma með því
að starf rækja madrassa (kóranskóla) og
moskur um heim allan og þá ekki síst á
Vesturlöndum . Hæst hefur verk þeirra risið
með uppfræðslu talíbana í Afganistan og
Pakistan og með því að kynda undir ólgu
meðal múslíma á Vesturlöndum .
Hérna keyptu þeir gamla Ýmishúsið
í Skógarhlíð til að reka þar mosku og
madrössu og munu þar væntanlega vaxa úr
grasi íslenskir mujaheddin í fyllingu tímans
til að berjast fyrir ríki Allah .
Formaður Félags múslíma hefur lýst því
að væntanlega koma fjármunir frá Katar til
að kosta moskuna, sem á að rísa á lóðinni
í Sogamýrinni, sem Reykja víkur borg gaf
félaginu vegna viðleitni meiri hlut ans til
að auka hér menningarlega fjöl breytni!
Katar greiddi fyrir moskuna, sem er risin í
L jóst er að aðilar í Katar styrkja Hamas og ISIS fjárhagslega .
Eins hafa fjármunir og önnur
aðstoð komið frá Saudi-Arabíu og
Tyrklandi . Saudarnir greiða 2–3
mill jarða Bandaríkjadala á ári (um
300 .000 .000 .000 kr) í útbreiðslu
wahhabisma með því að starf rækja
madrassa (kóranskóla) og moskur
um heim allan og þá ekki síst á
Vesturlöndum . . . Hérna keyptu
þeir gamla Ýmishúsið í Skógarhlíð
til að reka þar mosku og madrössu
og munu þar væntanlega vaxa úr
grasi íslenskir mujaheddin í fyllingu
tímans til að berjast fyrir ríki Allah .