Þjóðmál - 01.09.2014, Blaðsíða 91
90 Þjóðmál haust 2014
heimildir erlendra lögaðila utan EES-
svæðisins til að eignast land til beinnar
notkunar fyrir atvinnustarfsemi utan
skipulagðs þéttbýlis á þann hátt að stærðar-
takmörkun miðist við 5–10 hektara
og fjölda takmörkun sem felur aðeins í sér
heimild fyrir eina lóð fyrir lögaðila að með-
töld um tengdum aðilum . Varð andi afnota-
rétt (leigu) þá leggur nefndin til að erlendir
aðilar geti tekið allt það land á leigu sem
þeir hafa þörf fyrir til beinnar notk unar fyrir
atvinnustarfsemi til t .d . tíu ára án sérstakra
heimilda í stað þriggja ára eins og nú er .
Eftir skýrslan birtist var efni hennar
almennt túlkað á þann hátt að hugmyndum
Huangs Nubos hefði í raun verið hafnað .
Íslensk stjórnvöld geta sett skorður við
kaupum hans og leigu á landi . Um þetta
þarf ekki að deila . Óljóst er hver afstaða
Huangs Nubos til fjár festinga á Íslandi er
nú, réttum þremur árum eftir að hann lýsti
fyrst áhuga á að eignast 300 ferkíló metra
land Grímsstaða á Fjöllum .
Á fundi ríkisstjórnarinnar 12 . ágúst 2014
kynnti innanríkisráðherra áform um breyt-
ingar á lögum um eignarrétt og afnota rétt
fasteigna, nr . 19/1966 til samræmis við
tillög ur í ofangreindri skýrslu .
*
Í norskum blöðum kom fram að aðdrag-anda að sölu hins norska lands til
Huangs mætti rekja til október 2013 þegar
hinir norsku landeigendur buðu kínverska
sendi herr anum í hádegisverð og sögðust
hafa land til sölu . Tveimur vikum síðar var
Huang Nubo kominn til Norður-Noregs
og sigldi á báti með Gjæver jr . með strönd
Seljevik, hinnar umræddu jarðar sem er í
um klukkutíma akstursfjarlægð frá Tromsö .
Huang Nubo segist ætla að reisa fimm
stjörnu hótel á landinu fyrir ríka, kínverska
ferðamenn .
Áður en sagt var frá samskiptum Huangs
og Gjævers jr . höfðu norskir fjölmiðlar flutt
fréttir af áhuga Huangs Nubos á að kaupa
land á Svalbarða, Austre Adventfjord .
Landið er í eigu einstaklinga en með það
verður að fara í samræmi við Svalbarða-
samninginn og sérlög um Svalbarða . Land á
Svalbarða er mjög sjaldan til sölu og sagði í
fréttum að Huang vildi borga 110 milljónir
dollara fyrir þessa jörð .
Eftir að fjölmiðlar höfðu sagt frá þessum
áhuga Huangs og látið eins og hann væri
að ljúka gerð kaupsamnings birti norska
fréttastofan NTB frétt hinn 24 . maí
2014 þess efnis að eigendur jarðarinnar á
Svalbarða eða fulltrúar hennar hefðu aldrei
átt nein samskipti við Huang Nubo .
Samskipti Huangs Nubos við norska ríkis-
útvarpið, NRK, vegna jarðakaupanna voru
dæmigerð fyrir ýmislegt sem Íslendingar
hafa kynnst á undanförnum árum . Hinn 15 .
maí 2014 lýsti hann áhuga sínum á að kaupa
Austre Adventfjord á Svalbarða í samtali við
NRK . Hinn 24 . maí 2014 sagði hann við
útvarpið að hann hefði haldið viðtalið snúast
um landið í Lyngen í Troms .
Norsku fréttamennirnir lýsa undrun sinni
yfir þessum misskilningi því að allar spurn-
ingar þeirra hafi verið sendar skrifaðar til
Huangs í Peking . Þar að auki hafi fréttaritari
NRK í Peking haft með sér mynd af jörðinni
á Svalbarða og einnig spurt um hana beint
í samtalinu . Hinn 24 . maí sagði Huang
við útvarpið að hann hefði aldrei haft neitt
samband við Horn-fjölskylduna, landeig-
end urna á Svalbarða .
*
Þrátt fyrir ítrekaða netleit að staðfest-ingu á því að Huang Nubo og Ola
O . K . Gjæver jr ., hafi gengið formlega frá
kaupsamn ingi um Seljevik hefur hún ekki
fundist . Þ