Þjóðmál - 01.09.2014, Blaðsíða 72
Þjóðmál haust 2014 71
eru að endurreisa kalífatið í anda hinnar
einu sönnu fyrirmyndar, Múhammeðs .
Gráglettni örlaganna kom í veg að íslam
veslaðist alveg upp eins og stefndi að fyrir um
einni öld þegar geysileg verðmæti streymdu
óverðskuldað og óvænt upp úr jörð-
inni með olíunni í mörgum múslímskum
löndum og gera þeim kleift að valda
heiminum svo mikilli ógn að stefnir í 3ju
heimsstyrjöldina . Nútímavopn í höndum
þessara frumstæðu samfélaga er sambærileg
ógnun og hríðskotabyssa í höndum óðs
manns í mannþröng .
Hamas, sem ræður ríkjum á Gaza, er
eitt af fjöldamörgum afsprengjum bræðra-
lags ins en önnur sem má nefna eru al
Qaeda, Jabhat al-Nusra, Islamic Jihad,
Boko Haram, taliíbanar, Hizb ut-Tahrir,
al-Shabaab og síðast en ekki síst ISIS sem
veður nú yfir Sýrland og Írak og skilur eftir
sig dauða og tortímingu í anda hins hreina
og sanna íslam sem er sífellt að endurnýja sig
í anda Múhammeðs og nánustu samherja
og kallast þeir salafistar sem leituðu til
sjálfra „lindanna“ til að hreinsa íslam af
villutrú eins og Lúther hafði áður gert fyrir
kristnina .
Hinn eiginlegi „siðbótarmaður“ súnni
múslíma er Muhammad ibn Abd al-Wahhab,
18 . aldar guðspekingur á Arabíu skag anum,
en við hann er kenndur wahhabismi sem
ræður ríkjum m .a . í Saudi-Arabíu og Katar .
Ýmsa aðra má nefna til eins og Sayyid Qutb
sem er kannski helsti hugmyndafræð ing ur
allra þessara hópa enda hallaðist Osama bin
Laden meira að þeim síðastnefnda en þeim
fyrri . Nasser lét aflífa Qutb 1966 .
Þá, sem gæla við hugmyndir um að sið-
bætur séu mögulegar innan íslam, verður
því miður að hryggja með því að þær hafa
þegar farið fram með því að leita til upprun-
ans og árangur þess er núna hvarvetna afar
sýni legur í Mið-Austurlöndum . Breytingar
á hinu sanna og hreina íslam eru ekki mögu-
legar . Það kallast landráð, drottinssvik, guð-
last og telst vera dauðasök að reyna slíkt .
Slagorð Hamas eins og Múslímska
bræðralagsins er: Allah er raunveruleiki
okkar og markmið, spámaðurinn fyrir-
mynd in, kóraninn, lögin okkar, jihad-leiðin
og dauði fyrir Allah æðsta ósk okkar . Í stofn-
skrá sinni frá 1988 segir Hamas fullum
fetum að ekkert samkomulag við Ísrael sé
mögulegt, — hvorki tveggja ríkja lausn né
sambúð af neinu tagi .
„Friðarumleitanir og svokallaðar frið-
sam legar lausnir sem og alþjóðlegar ráð-
stefnur til að leysa Palestínuvandamálið
eru andstæðar hugmyndum íslamskrar
and spyrnuhreyfingar,“ segir orðrétt í stofn-
skránni . Þar segir einnig: „Ísrael mun
blómstra og standa föstum fótum þar til
íslam tortímir því eins og íslam tortímdi
forverum þess .“
Hamas lýsir því fullum fetum í stofn-
skránni að markmiðið sé að eyða Ísraelsríki
Hamas lýsir því fullum fetum í stofn skránni að
markmiðið sé að eyða Ísraelsríki
og drepa hvern einasta gyðing,
ekki bara í Ísrael heldur um
heim allan . En þetta er ekki
lokamarkmið Hamas heldur að
standa á rústum hvers einasta
menningarsamfélags heimsins
til að reisa þar ríki Allah að
fyrirmynd salafista . Þessa
framtíðarsýn eiga þeir með öllum
hreintrúuðum múslímum þó að
þeir séu mismunandi opinskáir
um drauma sína og fyrirætlanir .