Ægir - 01.07.2016, Page 88
navis.is
Skipahönnun Navis
leggur áherslu á umhverfisþætti
Verkfræði- og ráðgjafafyrirtækið Navis var stofnað árið 2003 af hópi skipaverkfræðinga og tæknifræð-
inga með áratuga reynslu úr sjávarútvegi.
Starfsemi Navis byggir því á traustum
grunni sem hefur verið lagður á löngum
tíma af sérfræðingum í hönnun og skipa-
verkfræði.
Navis er stærsta skipahönnunarfyrir-
tækið á Íslandi í dag. Aðalskrifstofa þess er
í húsi Sjávarklasans við Vesturhöfnina í
Reykjavík en Navis er einnig með starfs-
stöð á Akureyri.
Fyrirtækið hefur annast nýhönnun og
breytingar á flestum gerðum fiskiskipa, á
dráttarbátum, kaupskipum, ferjum og far-
þegaskipum og á sýningunni Sjávarútveg-
ur 2016 mun gestum gefast kostur á að
kynnast þessum verkefnum. Sem dæmi
um skip sem Navis hefur unnið við á þessu
ári má nefna breytingar á togaranum
Blæng NK sem er í eigu Síldarvinnslunnar
í Neskaupstað. Navis hannaði nýjar íbúðir
og vistarverur fyrir áhöfn togarans auk
innréttingar í brú og voru breytingarnar
framkvæmdar í skipasmíðastöð í Póllandi.
Nú er skipið komið til Akureyrar þar sem
komið verður fyrir nýrri vinnslulínu á
millidekki og mun Navis vera til ráðgjafar
og eftirlits með því verkefni. Bjarni Ás-
mundsson skipatæknifræðingur Navis á
Akureyri hefur haft aðalumsjón með
breytingunum á Blæng með dyggri aðstoð
kolleganna í Reykjavík. „Þegar álagið er
mikið er gott að eiga traust bakland fyrir
sunnan sem hægt er að leita til. Kosturinn
við stærri fyrirtæki eins og okkar umfram
einyrkjana er að við getum bætt fleiri
mönnum í verkin ef með þarf til
að það klárist á réttum tíma,“
segir Bjarni.
Alþjóðlegar kröfur
Á seinni árum hafa
tjónaskoðanir og mats-
gerðir af ýmsu tagi fyrir
innlend og erlend
tryggingafélög og
skipafélög verið vax-
andi þáttur í starfsemi
Navis. Hjörtur Em-
ilsson framkvæmdastjóri segir að við
hönnun Navis sé lögð sífellt meiri áhersla
á umhverfisþætti og orkusparnað og reynt
að minnka kolefnisspor útgerðanna og
efla mengunarvarnir. „Við aðstoðum út-
gerðirnar við að mæta alþjóðlegum kröf-
um sem Íslendingar hafa verið að innleiða
í þessum efnum. Þannig höfum við meðal
annars staðfært og útbúið umsýslukerfi
sem eru sniðin að þörfum einstakra skipa
og sem auðvelda útgerðunum að halda ut-
an um ýmsa umhverfisþætti í starfsem-
inni.“ Sem dæmi um slík kerfi nefnir hann
sorpumsýsluáætlun, orkunýtingaráætlun
og mengunarvarnaráætlun. Hann segir að
mikil áhersla sé lögð á að uppfæra og
halda þessum gögnum við þannig að þau
endurspegli og taki alltaf mið af
nýjustu reglum.
Rannsóknar- og þró-
unarstarf
Auk hefðbundinna
hönnunar- og viðhalds-
verkefna hefur Navis
einnig sinnt ýmsum
rannsóknar- og þróunar-
verkefnum. Þannig er Navis þátttakandi í
Green Marine Technology samstarfinu
sem hefur það yfirlýsta markmið að þróa
umhverfisvænar lausnir sem byggja á
grænni orku og minni olíunotkun og
stuðla að aukinni framleiðslu og framlegð.
Þá hefur fyrirtækið verið í samstarfi við
fleiri íslensk fyrirtæki um þróun á fyrsta
hybrid línubátnum hér á landi en talið er
að með hybrid vélbúnaði megi spara allt
að 30% í eldsneytiskostnaði. Alexander
Andersson skipaverkfræðingur segir að
nýleg ferð hans á miðin með línubáti frá
Austurlandi hafi styrkt hann í trú á þetta
verkefni. „Það eru miklir möguleikar
fólgnir í hybrid kerfum og það er ánægju-
legt að finna hve sjómenn og þeir sem
tengjast útgerðunum eru áhugasamir um
þetta verkefni.“ Navis tekur einnig þátt í
fjölþjóðlegu Evrópuverkefni um hönnun á
farþegaferju úr nýju plastefni. Að sögn
Hjartar eru bæði þessi verkefni háð því að
styrkir fáist til rannsóknanna og er hann
vongóður um að það takist.
88
Navis er stærsta skipahönnunarstofa landsins sem gerir henni kleift að takast á við
stór og fjölbreytt verkefni.
Alexander Anderson segir mikil tækifæri felast í hybrid kerfum í
fiskiskipum en á vegum Navis er unnið að þróun fyrsta íslenska hy-
brid línubátsins.