Morgunblaðið - 01.12.2017, Page 24
24 Jólablað Morgunblaðsins
H vað kemur þér íjólaskap?„Að bakajólasmákökurn-ar og hlusta ájólalög kemur
mér alltaf í jólaskap og svo auðvitað
öll jólaljósin. Ég var í Barcelona fyr-
ir tveimur árum í kringum jólin og
ég hef aldrei komist í jafn mikið jóla-
skap og þar. Ætli það hafi ekki verið
að hluta til vegna þess að það var
ekkert jólastress. Við röltum um
borgina sem var svo fallega skreytt
og jólatónlist á torgunum, svo rölti
ég um jólamarkaðina með kaffiboll-
ann. En jólamarkaðurinn í Barce-
lona er mjög stór og skemmtilegur.
Það kom mér á óvart hvað allt var
jólalegt þar þó að það væri enginn
snjór,“ segir Guðlaug.
Hvað finnst þér ómissandi
að gera á aðventunni?
„Mér finnst alltaf mjög gaman að
taka rölt niður Laugaveginn og
skoða bæinn og jólaskrautið í búðun-
um og setjast á kaffihús í einn bolla,“
segir hún.
Guðlaug játar að hún sé töluvert
jólabarn.
„Mér finnst jólin mjög notalegur
tími og flest í kringum jólin. Mér
finnst samt gjafirnar oft komnar út í
vitleysu og fólk of mikið að stressa
sig á því. Ég held að fólk myndi
njóta jólanna betur ef gjafastressið
væri minna. Ég gef reyndar bara
gjafir til þeirra nánustu svo þær eru
ekki of margar.“
Hvenær byrjar þú að
undirbúa jólin?
„Ég spái ekki mikið í það fyrr en í
desember eða í kringum fyrsta í að-
ventu. Ég er kannski búin að grípa
nokkrar jólagjafir í nóvember en
annars skreyti ég ekki fyrr en í des-
ember og er oft að baka bara rétt
fyrir aðfangadag.“
Guðlaug er mikill sælkeri og hefur
alla tíð elskað að baka.
„Ég verð að viðurkenna að ég er
mikill sælkeri og hef mjög gaman af
því að baka. Ætli ég hafi ekki verið
svona 8-10 ára þegar ég fór að
spreyta mig í eldhúsinu. Mér finnst
alltaf gaman að prófa að gera eitt-
Súkkulaði, karamella og
rjómi gera alla eftirrétti betri
Morgunblaðið/Hanna
❄ SJÁ SÍÐU 26
Guðlaug er mjög hrifin af því
að setja desertinn í glerglös.
Það skapar góða stemningu
og er fallegt framborið.
Guðlaug Dagmar Jónasdóttir er mikið jólabarn og hefur gaman af því að búa til deserta og
kökur. Hún segir að súkkulaði sé alltaf ómissandi þegar bakstur er annars vegar.
Marta María | martamaria@mbl.is
jó
la
kr
æs
in
ga
r
Jólin kalla á endalausa
eftirrétti, súkkulaði,
hnetur, möndlur og síróp.
SYKURHÚÐUÐ
JÓLAHÁTÍÐ
Finnst rjúpan miklu betri ef
hann skýtur hana sjálfur.
JÓI FEL
ELSKAR
VILLIBRÁÐ
Þorbjörg Hafsteinsdóttir
töfrar fram heilsusamlegri
jólamat.
HEILSU-
SAMLEG
JÓL