Morgunblaðið - 01.12.2017, Page 40

Morgunblaðið - 01.12.2017, Page 40
É g myndi segja að ég hafi alltafverið mikið jólabarn og sér-staklega hrifin af aðdragandajólanna sem ég reyni að lengjaeftir bestu getu. Svo er ég mikillnautnaseggur og finnst gott að hafa enn eina ástæðuna tl að gera vel við mig í mat, drykk, góðri tónlist og félagsskap. Svona „hygge“ tímabil eins og það gerist best,“ segir Berglind. Jólin og aðventan eru í miklu uppáhaldi hjá Berglindi. Hún segir að sér finnist best að slaka á um jólin og spila. „Og borða góðan mat. Við munum flytja á nýtt og dásamlegt heimili með góða sál fyrir þessi jól og þau verða því einstaklega ljúf,“ segir hún. Aðspurð hvað komi henni í jólaskap nefnir hún rölt um miðbæ Reykjavíkur. „Mér finnst gaman að kíkja í bókabúðir og á kaffihús. Gæða mér á dönsku smurbrauði og öli. Svo eru spilakvöld með vinum í uppáhaldi og líka smákökubakstur með börnunum mínum. Krydd eins og kanill og negull koma mér líka í jólaskap og líka mandarínur og falleg rauð epli. Ég kann líka að meta lágstemmda tónleika og svo mætti lengi telja,“ segir hún. Berlind er mikil „gourmet“-manneskja og því leikur okkur forvitni á því hvað hún borði á jól- unum. „Það er nú minna og minna heilagt eftir því sem árin líða. Núna er mesta áherslan lögð á að hafa það notalegt og elda mat sem gerir manni það kleift. Við höldum þó í möndlugrautarhefð- ina með fjölskyldunni og alltaf jafn spennandi að sjá hver vinnur möndlugjöfina það árið,“ seg- ir hún. Hvenær byrjar þú að kaupa jólagjafir? „Ég er búin að prufa allar útgáfur af þessu eins og til dæmis að byrja að kaupa jólagjafir að hausti. Það reyndist mjög illa því ég var alltaf að bæta í gjöfina og endaði því með dýrustu jól sem ég hef upplifað. Best að gera þetta bara þegar jólin fara að nálgast í lok nóvember eða hreinlega bara í desember.“ Sendir þú jólakort? „Já, oftast geri ég það, því ég elska sjálf að fá jólakort sem ég opna á jóladag. En það verður að viðurkennast að jóla- kortunum fer fækkandi með árunum enda raf- rænar kveðjur orðnar vinsælli. Fátt er samt notalegra en falleg orð á jólakorti.“ Hvað langar þig í í jólagjöf? „Já, þú segir nokkuð. Þetta hafði ég reyndar ekki hugsað út í. En jú, þar sem ég er að flytja væri ég til í fal- lega hluti fyrir heimilið eins og nýtt matarstell t.d. frá BITZ úr Snúrunni, Timeless kampavíns- glös frá Rekstrarvörum, JURA kaffivél sem útbýr góðan sterk- an kaffibolla fyrir mig, mjúkan baðslopp, svo fyrst ég er byrj- uð að óska mér langar mig í fallega Amber-ljósið með gula glerinu úr Epal – sem mér þykir ólýsanlega fallegt og myndi sóma sér svo vel fyrir of- an gamalt borðstofuborð sem mér áskotnaðist. En svo ég tóni þetta aðeins niður þá er góð bók alltaf gjöf sem hittir í mark hjá mér. Mig langar í nýju bókina hans Jóns Kalmans, Sögu Ástu, og eflaust einhverjar fleiri. Ég er alltaf sátt ef ég fæ góða bók.“ Þegar talið berst að jólastressi segist Berg- lind reyna að halda því í lágmarki því hún sé með bráðaofnæmi fyrir því. „Ég segi það nú samt ekki, maður dettur ein- staka sinnum í það en ég hef viljann að vopni og reyni að einfalda lífið. Ef eitthvað er ekki tilbúið þegar bjöllurnar hringja inn jólin þá fær það bara að vera þannig.“ Matarbloggið hennar Berglindar, Gulur, rauður, grænn og salt, fagnaði fimm ára afmæli sínu í ár. Berglindi fannst ekki annað koma til greina en að gefa út aðra matreiðslubók á þess- um tímamótum. „Ég var búin að vera að leggja drög að næstu bók í dágóðan tíma og fannst við hæfi að þessi nýja bók kæmi út í ár þegar Gulur, rauður, grænn &salt fagnar fimm ára afmæli sínu. Bók- in er gefin út af Benedikt bókaútgáfu og heitir einfaldlega Gulur, rauður, grænn & salt enda bara of fallegt nafn til að nota það ekki alltaf. Bókin sem er í anda vefsíðunnar inniheldur nýj- ar, einfaldar uppskriftir að töfrandi og litríkum réttum frá öllum heimshornum. Bragðgóðar uppskriftir, fallegar og litríkar myndir teknar af ítalska ljósmyndaranum Silvio Palladino ásamt fallegri hönnun og uppsetningu Benedikts bókaútgáfu gera þessa bók að stolti mínu og yndi,“ segir hún. Þegar ég spyr Berglindi hvort mat- reiðsla hennar hafi eitthvað breyst á þessum fimm árum vill hún alls ekki meina það. „Matreiðsla mín hefur haldist að mestu óbreytt enda hef ég ávallt lagt áherslu á fjölbreytni í mat og elda mest frá grunni. Ég notast enn við fá hráefni að mestu þó svo að það séu undantekningar á því enda er það góð hugleiðsla fyrir mig að undirbúa mat, með rauðvínsglas, við góða tónlist og þá nýt ég mín tímunum saman. En auðvitað er ég komin með mikla þekkingu á þessu sviði og góða til- finningu fyrir því hvað lesendur vefsíðunnar vilja.“ Finnst þér fólk hugsa öðruvísi út í mat núna en til dæmis þegar þú byrjaðir með mat- arbloggið þitt? „Ég hef að minnsta kosti fengið þakkir frá fólki sem hélt því fram að það kynni engan veg- inn að elda en svo hélt það matarboð með upp- skriftum af síðunni sem því þótti viðráðanlegrar og sló í gegn. Það er nú einfaldlega þannig að ef áhuginn er fyrir hendi, geta allir geta orðið meistarar í eldhúsinu,“ segir hún kát í bragði. Hvaða matur færir þér vellíðan? „Góður fiskréttur, kjúklingasalat, súpa ... nú og rauðvínsglas.“ Slaka og njóta Saga Ástu eftir Jón Kalman Stefánsson er á óskalista Berglindar. Berglind Guðmundsdóttir hjúkrunarfræðingur, matar- bloggari og fjögurra barna móðir var að senda frá sér sína aðra matreiðslubók, Gulur, rauður, grænn og salt, sem heitir í höfuðið á matarbloggi hennar sem fagnar fimm ára afmæli í ár. Berglind er jólabarn en hún þolir þó ekki jóla- stress og vill frekar njóta en að setja allt á hliðina fyrir lekkerheit sem engu skila. Marta María | martamaria@mbl.is Gulur, rauður, grænn og salt eftir Berglindi Guðmundsdóttur. Berglindi dauðlangar í þetta ljós en það heitir Amber, er frá PH og fæst í Epal. Þetta stell úr Snúrunni er á óska- lista Berglindar. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Berglind Guðmundsdóttir matarbloggari og hjúkrunarfræðingur. 40 Jólablað Morgunblaðsins 1 dl sykur 2 dl ljóst síróp 300 g Nutella 5 dl kornflögur 1 1/2 dl salthnetur 150 g suðusúkkulaði Bræðið sykur og síróp saman í potti. Hrærið Nutella-súkkulaðismjöri saman við. Myljið kornflögur, grófsaxið salthneturnar og bætir út í. Setjið smjörpappír í form (t.d. 20x20) og hellið blöndunni í formið. Kælið í klukkustund. Bræðið súkkulaðið og hellið yfir. Skerið í litla bita. Geymið í loftþéttum umbúðum í kæli eða frysti. Nutella sælgætisbitar með salthnetukurli Nutella sæl- gætisbitar með salt- hnetukurli. Íslensk hönnun og smíði síðan 1924 ERNA Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is GULL- OG SILFURSMIÐJA Perla Nýtt dömuúr frá YRSA Reykjavík Sjálfvinda (Automatic) úr stáli og keramik með perlumóður s Umhverfisvænt, engin batterí. Bankastræti 12, sími 551 4007 skartgripirogur.is kífu. 35.000,-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.