Jökull


Jökull - 01.01.2014, Page 100

Jökull - 01.01.2014, Page 100
Bryndís Brandsdóttir og Finnur Pálsson Samkvæmt miðinu úr Reykjavík gaus í Gríms- vötnum. Fréttaritari Þjóðólfs segir gosið 1867 hafa verið 2 mílum sunnar. Skeiðarárhlaup fylgdi gosinu, sagt með minna móti en jökullinn brotnaði og sprakk fram í meira lagi (S.Þ., 1974). Í skýrslu séra Páls Páls- sonar á Prestbakka í Þjóðólfi 26. feb. segir að jökull- inn hafi sprungið í mesta lagi, einkum að vestanverðu, svo stórt gljúfur skarst inn í jökulinn og jökulhrönnin lá eftir farveg Núpsvatnanna langt fram á sanda. Þessar lýsingar benda til þess að hlaupið 1873 hafi hegðað sér svipað og hlaupið 1996, a.m.k. vestast á sandinum. Til að sprengja upp jökulinn með þessum hætti þarf kraftmikið hlaup, flóðbylgju. Magn hlaup- vatns 1873 gæti verið vanmetið í ljósi þess að hlaupið stendur skemur en hefðbundin hlaup. Vatnajökull 1876 Ísafold 3. árg., 16. tbl., 29. júlí 1876, bls. 63. „Aðfara- nótt hins 22. þ.m. þóttust menn víða hjer syðra verða varir við nokkur merki þess, að eldur mundi uppi ein- hverstaðar fyrir austan eða norðan, og mikið mistur var hjer dagana á eptir. Hefir merkur og skilvís mað- ur úr Hreppunum sagt oss frá, að þaðan hafi þennan morgun sjest mökkur mikill eða bólstur í austri, því líkastur sem gos væri, og ekki trútt um, að öskufall sæist á grasi. Bæði þar og annarstaðar þar um sveitir höfðu heyrzt dynkir eigi all-litlir um nóttina.“ Norðlingur 2. árg., 16. tbl., 22. sept. 1876, bls. 63. „Að austan: ...Í héraði þykjast menn vissir um að mik- ill eldur sé uppi, líklega í Vatnajökli, því mikils hita og brennisteinsfýlu hafa menn þótst verða varir við þegar vindur stóð af þeirri átt.“ Úr bréfi frá Sigurði Gunnarssyni, dags. 16. jan. 1877, í Norðanfara 16. árg., 13.–14. tbl., 16. feb. 1877. „...Opt fundust þess merki hjer í sumar, að jarðeldur væri uppi, inn og vestur í Vatnajökli. Því þegar vind- blær stóð þaðan, fannst bæði opt námafýla, og svo var sem hitaloptsöldur bærist þaðan, stundum um nætur. Enda sáu menn hjer í haust reykjarmökk upp úr jökl- inum, suðvestur af Kverkfjöllum. Námafýla fannst og þaðan, nú fyrir jólin. Eptir líkindum, af því sem jeg hefi heyrt, er sá eldur sunnan við hábungu jökulsins.“ Sigurður Þórarinsson (1974) telur hæpið að raun- verulega hafi hér verið um gos að ræða en hann virðist ekki hafa lesið frásögn Sigurðar Gunnarssonar, sem tekur af allan vafa um að eldgos var uppi þetta sum- ar. Miðið frá Héraði suðvestan við Kverkfjöll sem og miðið úr Hreppunum gæti bent til þess að gosið hafi nálægt Grímsvötnum. Hafi megn brennisteinslykt fylgt gosi í Grímsvötnum getur ekki hafa verið mik- ið vatn þar. Eina skýring þess væri sírennsli þaðan eftir hlaupið 1873. Líklegra er að brennisteinsmeng- unin hafi stafað frá gosi utan jökuls, í Kverkfjöllum?, Tröllagígum?, Dyngjuhálsi? eða Holuhrauni? Eldgos í eldstöðvum Vatnajökuls. – Volcanic activity related to Vatnajökull volcanic systems. Ár Eldstöð jökulhlaup heimildir/ Year Volcano references 1903 Bárðarbunga-Grímsvötn, Þórðarhyrna ?Skeiðará/Skjálfandafljót/Jökulsá á Fjöllum S.Þ. 1902 Bárðarbunga-Grímsvötn Skjálfandafljót/Jökulsá á Fjöllum S.Þ. 1897 Bárðarbunga? Grímsvötn Skeiðará S.Þ. 1891–1892 Bárðarbunga-Grímsvötn ?Skeiðará S.Þ. 1888–1889 Vatnajökull? S.Þ. 1887 Þórðarhyrna? Súla S.Þ. 1885 Vatnajökull? S.Þ. 1883 Dyngjuháls? 1883 Bárðarbunga? Grímsvötn Skeiðará S.S., S.Þ. 1877 Vatnajökull? 1876 Bárðarbunga-Grímsvötn? Tröllagígar?, Kverkfjöll?, Dyngjuháls? 1873 Bárðarbunga? Grímsvötn, Þórðarhyrna Núpsvötn/Skeiðará/Djúpá S.Þ. 1872 Dyngjuháls? S.Þ. 1868 Tröllagígar? Bárðarbunga? 1867 Bárðarbunga? Grímsvötn-Háabunga-Þórðarhyrna ?Skeiðará S.Þ. 1862–1864 Bárðarbunga, Dyngjuháls?, Holuhraun? S.S., S.Þ., M.H. og Th.Th. 1861 Bárðarbunga-Grímsvötn ?Skeiðará S.Þ. 1852 Bárðarbunga-Grímsvötn ?Skeiðará S.S., S.Þ. 1838 Bárðarbunga-Grímsvötn ?Skeiðará S.S., S.Þ. ? stórt/large jökulhlaup í/in Skeiðará. 100 JÖKULL No. 64, 2014
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160

x

Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Jökull
https://timarit.is/publication/1155

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.