Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 130

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2010, Side 130
130 TMM 2010 · 1 D ó m a r u m b æ k u r Soffía Auður Birgisdóttir Saga Þórbergs: Þroskasaga einstaklings og samfélags Pétur Gunnarsson: ÞÞ – í fátæktarlandi. Þroskasaga Þórbergs Þórðarsonar, JPV útgáfa 2007. ÞÞ – í forheimskunarlandi, JPV útgáfa 2009.1 I Margt bendir til þess að um þessar mundir séum við að upplifa blómaskeið í íslenskri ævisagnaritun sem einkennist af ýmiss konar tilraunum með ævi­ sagnaformið sjálft. Slíkar formtilraunir hafa lengi tíðkast í sjálfsævisögum en að mínu viti hefur hið sama ekki verið uppi á teningnum innan ævisagnarit­ unar fyrr en undanfarin ár, með örfáum undantekningum.2 Það er alkunna að ævisagan hefur lengi verið ein allra vinsælasta tegund bókmennta á Íslandi, sú tegund bókmennta sem á sér stærstan lesandahóp og flestir hafa einhverja skoðun á. Lengi vel höfðu fræðimenn hins vegar lítinn áhuga á ævisögum sem rannsóknarefni (allavega í bókmenntafræðum þar sem lengst af var litið á ævi­ söguna sem óæðri bókmenntategund) þó margir þeirra hafi að sjálfsögðu verið dyggir lesendur ævisagna eins og aðrir. Þetta hefur þó breyst mikið á undan­ förnum árum, jafnt á Íslandi sem erlendis, og í raun er hægt að tala um spreng­ ingu á sviði æviskrifarannsókna undanfarna tvo áratugi, en tugir bóka koma núorðið út á þessu rannsóknarsviði á hverju ári beggja vegna Atlantsála. Raunar er ekki skrýtið að ævisagan (og ekki síst sjálfsævisagan) sé sá vett­ vangur deilna og skoðanaskipa, bæði innan fræðaheimsins sem utan hans, sem raun ber vitni. Ástæðan fyrir því liggur einfaldlega í sannleikskröfunni; les­ endur ætlast til þess að þar sé lýst „raunverulegum atburðum“ eins og kostur er og „eins og þeir gerðust“ – „sannleikurinn“ sé þar með öðrum orðum fram­ reiddur á einfaldan og auðskiljanlegan hátt. Í umræðunni um æviskrif fer fram stöðug hugmyndafræðileg umræða, jafnvel barátta, um merkingu hugtaka á borð við veruleika, sannleika, sköpunargáfu og ímyndunarafl sem og um aðferðafræði, heimildaúrvinnslu og fleira sem lýtur að vinnubrögðum höfund­ arins. En það er einmitt þetta sem gerir æviskrif að svo frjóu og spennandi sviði fyrir fræðimenn. Hér ætti að nægja að minna á að hatrömmustu deilur sem sprottið hafa upp innan íslenska fræðasamfélagsins snerust einmitt um ævisögu; ævisögu Halldórs Laxness eftir Hannes Hólmstein Gissurarson, þar sem ýmsum þótti Hannes seilast lengra en góðu hófi gegndi inn í texta Hall­
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.