Tímarit Máls og menningar - 01.06.2009, Blaðsíða 32
H e n r y D av i d Th o r e a u
32 TMM 2009 · 2
að vera „leir“ sem „heftir nú vetrarnæðing inn um gátt“7 eða í það
minnsta eftirlætur það embætti moldum sínum –
„til þess er ég of tiginn
Að vera hjú á vegum annarra,
Nytsamur þjónn, og þarflegt verkfæri
Í höndum nokkurs valds í allri veröld.“8
[6] Sá sem helgar sig algjörlega meðbræðrum sínum er í augum þeirra
gagnslaus og eigingjarn, en sá sem helgar þeim líf sitt aðeins að hluta er
kallaður velgerðamaður og mannvinur.
[7] Hvernig ber manni að hegða sér gagnvart núverandi Bandaríkja-
stjórn? Ég tel að hann geti ekki haft neitt saman við hana að sælda nema
sér til vanvirðu. Ég get ekki eitt einasta augnablik litið á það stjórnvalds-
tæki sem mína ríkisstjórn sem jafnframt er þrælastjórn.
[8] Allir viðurkenna rétt manna til byltingar: það er að segja rétt
manna til að segja sig úr lögum og veita viðnám þegar harðstjórnin eða
dugleysi hennar verður yfirgengileg eða óbærileg. En flestir segja að
þetta eigi ekki við nú. Samt telja þeir að svo hafi verið í byltingunni ’75.9
Ef mér væri sagt að þetta væri slæm stjórn vegna þess að hún legði toll á
sumar innflutningsvörur, þá eru litlar líkur á að ég færi að gera veður út
af því, þar sem ég get verið án þessa varnings. Það kemur upp núningur
í öllum vélum og líklega hafa afleiðingarnar kosti sem vega upp á móti
göllunum. Að minnsta kosti er rangt að bölsótast yfir slíku. En ef nún-
ingurinn kemur sér upp sinni eigin vél, kúgun og rán eru skipulögð, þá
segi ég að við skulum losa okkur við slíka vél. Með öðrum orðum: þegar
sjöttungur þeirrar þjóðar, sem fann frelsi sínu athvarf, er þrælar og allt
landið setið og sigrað af erlendum her, býr við herlög, þá tel ég að ekki
sé seinna vænna en heiðarlegt fólk rísi upp og geri byltingu. Það sem
gerir þessa skyldu brýnni er að hið hersetna land er ekki okkar land
heldur er innrásarherinn á okkar snærum.
[9] Paley, sem margir líta til í siðferðilegum efnum, ályktar sem svo í
kaflanum Hlýðniskylda við borgaralega stjórn10 að allar skyldur borgar-
anna byggist á því sem nytsamlegt er, og hann heldur áfram og segir:
„… svo lengi sem það er til hagsbóta fyrir samfélagið allt, það er, svo
framarlega að ekki sé hægt að veita ríkjandi stjórn viðnám eða breyta
henni nema með óhagræði fyrir almenning, er það vilji guðs að hlýða
ríkjandi stjórn, en ekki lengur … Ef gengið er út frá þessari grundvall-
arreglu, þá fer réttlæti í hverju því tilfelli sem veitt er viðnám eftir því
hversu mikla hættu og misrétti er annars vegar um að tefla og líkurnar
TMM_2_2009.indd 32 5/26/09 10:53:23 AM