Tímarit Máls og menningar - 01.06.2009, Blaðsíða 38
H e n r y D av i d Th o r e a u
38 TMM 2009 · 2
einmitt þetta tækifæri. Sá ágæti nágranni minn, skattheimtumaðurinn,
er sá sem ég á samskipti við – því þegar allt kemur til alls deili ég við fólk
en ekki bókfell – og hann hefur af frjálsum vilja kosið að vera umboðs-
maður stjórnarinnar. Hvernig á hann nokkru sinni að komast að því
hvað hann er og gerir sem fulltrúi stjórnarinnar, eða sem maður, fyrr en
hann þarf að gera upp við sig hvort hann á að koma fram við mig,
nágranna sinn sem hann ber virðingu fyrir, eins og nágranna og velvilj-
aðan mann eða sem vitfirring og ólátasegg og komast að því hvort hann
geti sneitt hjá því að vera góður granni án ruddalegri og hvatvísari hugs-
unar eða orða en hæfa gerðum hans? Ég er þess fullviss að ef eitt þúsund,
ef eitt hundrað, ef tíu menn sem ég gæti nefnt – ef aðeins tíu heiðarlegir
menn – já, ef einn HEIÐARLEGUR maður í Massachusettsríki hætti
þrælahaldi, drægi sig út úr þessari samvinnu og yrði þar af leiðandi
stungið í héraðsfangelsið, væri þrælahald í Bandaríkjunum þar með úr
sögunni. Því það skiptir engu hversu smávægileg byrjunin kann að virð-
ast: það sem er einu sinni vel gert mun standa. En okkur finnst betra að
tala um það sem við nefnum köllun okkar. Umbætur hafa urmul dag-
blaða á sínum snærum en engan mann. Ef háttvirtur nágranni minn,
sendiherra ríkisins26, sem helgar tíma sinn því að komast að niðurstöðu
um mannréttindi í ráðsnefndinni í stað þess að eiga á hættu fangelsisvist
í Suður-Karólínu, yrði fangi í Massachusetts, því ríki sem er svo áfram
um að klína þrælasyndinni upp á systurríki sitt – þótt það hafi enn sem
komið er ekki getað vænt það ríki um annað en skort á gestrisni – þá
gæti löggjafarsamkoma ríkisins ekki með öllu ýtt málinu til hliðar
næsta vetur.
[9] Undir stjórn sem fangelsar einhvern ranglega er fangelsi líka rétti
staðurinn fyrir réttlátan mann. Á þessari stundu er fangelsi rétti stað-
urinn, eini staðurinn, sem Massachusettsríki hefur upp á að bjóða fyrir
frjálsa og djarfa anda þegar ríkið að eigin frumkvæði vísar þeim frá og
læsir úti úr ríkinu á sama hátt og þeir hafa sannfæringar sinnar vegna
lokað sig úti úr ríkinu. Það er þarna sem flóttaþrællinn, mexíkanski
fanginn á reynslulausn og indíáninn sem kominn er til að bera upp þau
rangindi sem kynþáttur hans er beittur27 ættu að hitta þessa menn, á
þessum afmarkaða en frjálsa og virðingarverða stað sem ríkisvaldið
setur þá sem eru ekki með því heldur gegn því – í eina húsinu í þrælaríki
sem frjáls maður getur dvalið og haldið virðingu sinni óskertri. Ef ein-
hver heldur að áhrifa þeirra gætti ekki þar og rödd þeirra hrelldi ekki
eyru ríkisvaldsins, að þeir væru ekki líkt og óvinir innan veggja þess, þá
veit hann ekki hvernig sannleikurinn er afglöpunum yfirsterkari og
hvernig sá sem reynt hefur rangindin á eigin skinni getur barist gegn
TMM_2_2009.indd 38 5/26/09 10:53:23 AM