Tímarit Máls og menningar - 01.06.2009, Blaðsíða 29
TMM 2009 · 2 29
Henry David Thoreau
Borgaraleg óhlýðni
Thoreau flutti þessa ritgerð fyrst sem fyrirlestur í The Concord Lyceum í janúar
1848 og bar sá lestur titilinn “On the Relation of the Individual to the State“. Í maí
árið eftir birtist hann svo í tímaritinu Aesthetic Papers sem Elizabeth Peabody gaf
út undir fyrirsögninni „Resistance to Civil Government“. Núverandi titill, „Civil
Disobedience“, var ekki notaður fyrr en að Thoreau látnum árið 1866 í bók hans A
Yankee in Canada, with Anti-Slavery and Reform Papers, en hefur verið notaður
síðan. Munurinn á þessum tveimur fyrstu útgáfum er næsta lítill, aðallega greinar-
merki og hástafir, en gera má ráð fyrir að Thoreau hafi sjálfur leiðrétt fyrri útgáf-
una og því réttara að nota þá seinni – þýðandi.
Ég tek heils hugar undir einkunnarorðin: „Sú stjórn er best sem stjórnar
minnst“1, og ég vildi gjarna sjá þeim framfylgt hratt og markvisst. Ef það
væri gert kæmi að því sem ég er líka sammála: „Sú stjórn er best sem
stjórnar alls ekki“ og þegar menn verða undir það búnir koma þeir slíkri
stjórn á laggirnar. Ríkisstjórn er í besta falli hagkvæm en flestar stjórn-
ir eru oftast, og allar stjórnir eru einhvern tíma, óhentugar. Mótbárur
sem komið hafa fram gegn fastaher, og þær eru margar og mikilsverðar
og eiga það skilið að ná fram að ganga, er þegar allt kemur til alls líka
hægt að setja fram gegn fastri ríkisstjórn. Fastaherinn er í raun ekkert
annað en armur fastrar ríkisstjórnar. Ríkisstjórnin sjálf er ekki annað
en aðferð sem þjóðin hefur valið til að koma fram vilja sínum og alveg
jafn líklegt að henni sé misbeitt og hún skrumskæld áður en þjóðin geti
beitt henni. Lítið á Mexíkóstríðið sem nú geisar2, verk tiltölulega fárra
einstaklinga sem nota fastskipað ríkisvald sér til framdráttar því upp-
haflega hefði þjóðin ekki fallist á þessar aðgerðir.
Núverandi ríkisstjórn Bandaríkjanna: hvað er hún annað en hefð, og
ekki ýkja gömul, sem leitast við að skila sér óskaddaðri til komandi kyn-
slóða þótt sífellt kvarnist úr heiðarleika hennar? Hún hefur ekki til að
bera lífskraft einstaklingsins því einn maður getur sveigt hana undir
vilja sinn. Hún er einhvers konar trébyssa fyrir þjóðina. En hún er engu
TMM_2_2009.indd 29 5/26/09 10:53:23 AM