Tímarit Máls og menningar - 01.06.2009, Blaðsíða 72
72 TMM 2009 · 2
Úlfhildur Dagsdóttir
Drekar, dömur og
dæmalaus töfrabrögð
nýlegar þýddar fantasíur fyrir börn og unglinga
Það verkar kannski óþarflega dramatískt en ég er samt að hugsa um að
hefja þessa grein á dauða bókarinnar. Eða réttara sagt meintum dauða
hennar, en í ljós hefur komið að allar frásagnir af dauða hennar reyndust
stórlega ýktar. Auðvitað einfalda ég söguna og gerist jafnvel sek um
sögufölsun, en þetta er grein um fantasíur og því finnst mér ég megi vel
taka svolítið út úr ævintýrabankanum (enda er hann eini bankinn sem
er ekki gjaldþrota í augnablikinu). Það er auðvitað Harry Potter sem er
aðalsöguhetjan í þessari sögu af dauða og upprisu, eða er það höfundur
hans, Jóhanna Rowling? Allt fer það eftir því hvort sagan er sögð frá
sjónarhóli femínismans eða fantasíunnar.
Þið munið vel eftir þessu, þetta var síðla á tíunda áratugnum, fyrir-
tíðaspennan var að hefjast með tilheyrandi dómsdagsspám þar sem
tæknin lék aðalhlutverkið. Annars vegar átti hún að taka yfir – bókina
til dæmis – og hins vegar að hrynja (2000 heilkennið). Þessi ægilegi
nútími kvikmynda og myndbanda, tækni og tölva, sæborga og sjón-
varpa, virtist fyllilega í stakk búinn að koma ritmáli og lestri fyrir katt-
arnef. Bókin með sínum kápum og kjölum, brakandi pappír og svörtum
sæg tákna væri illa samkeppnishæf í heimi uppfullum af lifandi og lit-
ríkum myndum, gagnvirkum leikjum og eilífu aðdráttarafli blárrar
birtu skjáanna. Tæknin birtist sem eins konar rottufangari sem með
flautuleik sínum lokkar börnin burt úr hollum heimi bókarinnar inn á
refilstigu rafrænna rása. Bókin og ritmálið yrðu að táknum fortíðar,
gamalla og góðra gilda sem mættu sín lítils gagnvart aðdráttarafli hinn-
ar lævísu stafrænu tungu.
Mitt í þessu öllu gaf einstæð móðir út litla fantasíubók um galdrastrák
og vini hans og óvini. Og þessi bók, í anda gamalla og góðra ævintýra-
sagna, varð að smelli meðal ungdómsins – og reyndar einnig eldri les-
enda. Bókin heitir auðvitað Harry Potter og viskusteinninn (1997, ísl.
TMM_2_2009.indd 72 5/26/09 10:53:26 AM