Tímarit Máls og menningar - 01.06.2009, Qupperneq 73
D r e k a r , d ö m u r o g d æ m a l a u s t ö f r a b r ö g ð
TMM 2009 · 2 73
þýð. 1999). Næstu bækur festu vinsældirnar enn í sessi og síðan var að
sjálfsögðu stefnt á vit tækninnar, inn í heim kvikmynda og tölvuleikja.
Harry Potter og viskusteinninn er að mörgu leyti ósköp hefðbundin
fantasía sem sækir óspart til annarra slíkra. Sagan tekur til dæmis mið
af mjög greinilegri strákahefð í ævintýrabókum, allt frá Pétri Pan til
Bróður míns Ljónshjarta og Hringadróttinssögu; en þær eru líka undir
áhrifum frá Lísu í Undralandi, Earthsea-seríu Ursulu Le Guin (fyrsta
bókin, Galdramaðurinn, var þýdd á íslensku 1977), og Diskheimsbókum
Terrys Pratchett. Þannig eru bækurnar um Harry Potter blanda af fant-
asíum héðan og þaðan og þetta er barasta hið besta mál, því fantasían
hefur alla tíð verið eins konar blendingur.1 Til dæmis byggist fantasía
alltaf á samþáttun hins kunnuglega veruleika og öðrum óþekktari eða
fjarlægari.
Slíkar blöndur eru að sjálfsögðu ekkert endilega alltaf vel heppnaðar,
en að þessu sinni hitti höfundur á rétta jafnvægið og Harry Potter sló í
gegn. Og þó að ýmsir hafi nöldrað yfir meintum skorti á bókmennta-
legum gæðum, illum boðskap (galdur er góður) og barnvæðingu bók-
mennta, þá voru þær raddir sterkari sem töluðu um endurkomu bókar-
innar og bóklesturs. Fram kom skyndilega mikill fjöldi fantasía sem var
stillt út í bókabúðum og auglýstar „í anda Harrys Potter“ eða álíka og
eldri bækur voru markaðsettar upp á nýtt, eins og fyrrnefndar bækur
Ursulu Le Guin.
Það vakti óneitanlega athygli mína að það skyldi hafa verið fantasía
sem olli þessari flóðbylgju og það meira að segja fantasía sem er um
margt ákaflega gamaldags, með sínum drekum, köstulum og galdra-
mönnum. Harry Potter bækurnar minna um margt á hefðbundið
ævintýri, með nútímalegu ívafi. Þannig er eins og sá fortíðarhyggjuandi
sem svífur yfir umræðu um bókina á stundum smitist yfir í efni bók-
anna. Á hinn bóginn má benda á að þegar kemur að hinu tæknivædda
efni, svo sem tölvuleikjum, eru það einmitt ævintýri og fantasíur sem
eru vinsælar. Af þessu má vel draga þá ályktun að ævintýrið sé í raun
tímalaust og sígilt og því hafi bara þurft góða fantasíu í bókarformi til
að keppa við þá tæknivæddu. Fantasíur í formi bókmennta og kvik-
mynda eru nú orðnar sjálfsagt mál og þeir sem kunna slíkt að meta fitna
eins og púkinn á fjósbitanum af alls konar ævintýralegum sögum um
dreka og galdrafólk af ýmsu tagi, auk annarra (ó)vætta sem sverja sig í
ætt þjóðsagna.
Hér á landi á er allavega ljóst að ævintýrið um Harry Potter hefur
orðið til þess að ýta mjög undir þýðingar alls konar hnýsilegra fantast-
ískra barna- og unglingabóka.2
TMM_2_2009.indd 73 5/26/09 10:53:26 AM